Körfubolti

Njarðvíkingum finnst bann Buljan vera óhóflegt og vilja endurskoðun

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Zvonko Buljan í leik með Telekom Baskets Bonn.
Zvonko Buljan í leik með Telekom Baskets Bonn. Getty/ Dennis Grombkowski

Stjórn Körfuknattleiksdeildar Njarðvíkur hefur sent frá sér yfirlýsingu þar sem hún hvetur stjórn KKÍ sem og aga- og úrskurðarnefnd til þess að endurskoða niðurstöðu sína í máli Króatans Zvonko Buljan.

Zvonko Buljan byrjaði vel með Njarðvíkingum og var með 25 stig og 11 fráköst í tólf stiga sigri á KR-ingum. Hann gerðist hins vegar sekur um óíþróttamannslega framkomu í leiknum.

Zvonko Buljan var í gær dæmdur í þriggja leikja bann af aga- og úrskurðarnefnd KKÍ fyrir að taka KR-inginn Roberts Stumbris hreðjataki í leik KR og Njarðvíkur í fyrstu umferð Domino´s deildar karla.

Hér fyrir neðan er yfirlýsing Njarðvíkinga.

Eins og fram hefur komið var Zvonko Buljan leikmaður Njarðvíkur í dag dæmdur í þriggja leikja bann af aga- og úrskurðarnefnd KKÍ. Niðurstaða nefndarinnar er stjórn KKD UMFN mikil vonbrigði.

Stjórn KKD UMFN mótmælti ekki kærunni til aga- og úrskurðarnefndar þegar hún var upphaflega send til félagsins enda áttu gjörðir Buljan sem hann er dæmdur fyrir ekkert erindi við körfuknattleik. Njarðvík harmar þessa hegðun leikmannsins og verður tekið á málinu innanbúðar með viðeigandi hætti. Það er einróma mat stjórnar KKD UMFN að í þessu máli hafi aga- og úrskurðarnefnd farið umtalsvert úr hófi fram við dómskvaðningu sína. Að vísa til reglugerðar um líkamsmeiðingar eða tilrauna til slíks, þegar myndbandsupptakan sýnir glögglega að þarna var á ferðinni óviðeigandi hegðun og tilraun til ögrunar án líkamsmeiðinga, er óhóf af hálfu aga- og úrskurðarnefndar.

Síðustu sex ár hafa sex leikmenn á Íslandi verið dæmdir í þriggja leikja bann eða meira. Ástæður hafa verið m.a. „hættuleg framkoma gagnvart dómurum leiksins.“ – „Sérlega grófur leikur eða ofbeldi.“ – „Alvarlega grófur leikur.“ Myndbandið sem farið var vel yfir í Körfuboltakvöldi sýnir að sú var ekki raunin í viðureign KR og Njarðvíkur þann 3. október og því vill stjórn KKD UMFN hvetja stjórn KKÍ sem og aga- og úrskurðarnefnd til þess að endurskoða niðurstöðu sína í málinu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×