Sport

Dagskráin í dag: Þýskaland, Spánn, Vodafonedeildin og Pepsi Max Mörkin

Anton Ingi Leifsson skrifar
Sergio Ramos og samherjar hans í spænska landsliðinu spila í Úkraínu í kvöld.
Sergio Ramos og samherjar hans í spænska landsliðinu spila í Úkraínu í kvöld. David S. Bustamante/Soccrates/Getty Images)

Það verður nóg um að vera á sportrásum Stöðvar 2 í dag og kvöld en alls má finna fimm beinar útsendingar á stöðvunum í dag.

Klukkan 18.45 verður flautað til leiks í tveimur leikjum í Þjóðadeildinni. Þýskaland fær Sviss í heimsókn á meðan Spánverjar fara til Úkraínu og mæta heimamönnum.

Eftir leikina í Þjóðadeildinni í kvöld verða svo allir leikir kvöldsins gerðir upp og sýnt frá öllum mörkunum. Markaþátturinn hefst klukkan 20.45.

Klukkan 19.15 heldur svo Vodafonedeildin í CS:GO áfram að rúlla en Dusty getur tryggt sér sigurinn í kvöld.

Pepsi Max mörkin eru á sínum stað í kvöld þrátt fyrir að enginn fótbolti hefur verið spilaður í íslensku deildunum en Helena Ólafsdóttir og spekingar hennar munu hins vegar fara yfir stöðuna í deildum hérlendis og erlendis.

Allar útsendingar dagsins má sjá hér.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×