Sport

Dagskráin í dag: Hólmurinn heillar, körfuboltaleikir frá aldamótum og úrslitaleikir enska FA bikarsins

Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar
Ungur Logi Gunnarsson er á boðstólnum á Stöð 2 Sport í dag. Ef vel er að gáð má sjá þáttastjórnanda Domino´s Körfuboltakvölds reyna að stöðva hann.
Ungur Logi Gunnarsson er á boðstólnum á Stöð 2 Sport í dag. Ef vel er að gáð má sjá þáttastjórnanda Domino´s Körfuboltakvölds reyna að stöðva hann. Vísir/Anton

Beinum útsendingu frá íþróttaviðburðum hefur snarfækkað vegna útbreiðslu kórónuveirunnar eins og gefur að skilja. Til að mæta því hafa Stöð 2 Sport og hliðarrásir verið dagskrársettar með nýju dagskrárefni og endursýningum af safnefni til að stytta íþróttaþyrstum stundirnar.

Stöð 2 Sport

Ásamt skemmtilegustu leikjum aldarinnar í úrvalsdeild deild karla í körfubolta þá verða sýndir magnaðir leikir úr FA bikarnum í Englandi ásamt endursýndum þætti af Sportið í dag.

Stöð 2 Sport 2

Það er nóg um að vera á Stöð 2 Sport 2 í dag en við sýnum þættina 1 á 1 þar sem Guðmundur Benediktsson ræðir við íþróttafólk og þjálfara. Þá er Alfreð Finnbogason heimsóttur en þátturinn er frá þeim tíma þegar hann var í röðum Heerenveen í Hollandi.

Hólmurinn heillaði er heimildamynd eftir Garðar Örn Arnarson um tvöfalda Íslandsmeistara kvennaliðs Snæfells í körfubolta. Þá endursýnum við Sportið í kvöld úr vikunni sem og við sýnum þættina um Goðsagnir íslenskrar knattspyrnu.

Stöð 2 Sport 3

Á Stöð 2 Sport 3 verða sýndir úrslitaleikir ensku FA bikarkeppninnar undanfarin ár.

Stöð 2 eSport

Endursýning frá Íslandsmótinu í eFótbolta er á dagskrá ásamt Vodafone-deildinni í League of Legends.

Stöð 2 Golf

Opinber mynd um President mótið frá síðasta ári er á dagskrá sem og við sjáum frá Augusta meistaramótinu í fyrra sem og mynd um Ryder keppnina frá 2018.

Sportið í dag er á dagskrá á Stöð 2 Sport alla virka daga klukkan 15.00. Upptökur af fyrri þáttum má nálgast á sjónvarpsvef Stöðvar 2. Stöð 2 Sport er hluti af Sportpakkanum.

Sportið í kvöld er á dagskrá Stöðvar 2 Sports á þriðjudags-, miðvikudags- og fimmtudagskvöldum klukkan 20.00. Upptökur af fyrri þáttum má nálgast á sjónvarpsvef Stöðvar 2. Stöð 2 Sport er hluti af Sportpakkanum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×