Skoðun

Velferð á neyðarstigi

Heiða Björg Hilmisdóttir skrifar

Frá því að neyðarstigi almannavarna var lýst yfir hefur farið fram stórfelld endurskipulagning á velferðarþjónustu Reykjavíkurborgar. Þjónustan er margvísleg allt frá foreldranámskeiðum yfir í hjúkrunarheimili og í mörg horn að líta. þjónustuþegar eru um fimmtán þúsund á hverju ári og þeir frá þjónustu frá 120 starfsstöðum, þar af 64 sem veita sólarhringsþjónustu. Verkefnið hefur verið að tryggja órofna þjónustu eins og hægt en fylgja á sama tíma leiðbeiningum og fyrirmælum landlæknis og almannavarna til hins ítrasta. Á þjónustumiðstöðvum er áfam hægt að sækja fjölbreyttan stuðning og þjónustu við einstaklinga og fjölskyldur en þjónustan fer í auknu mæli fram í gegnum netið. Skólaþjónusta þarf að starfa með öðru sniði sem og allt almennt félagsstarf fyrir fullorðið fólk sem og dagdvalir og virkniúrræði fyrir börn, fullorðna og fólk með fatlanir eða aðrar áskoranir. Við höfum lagt áherslu á einstaklingsbundnar lausnir, upplýsingar og samtal við hvern og einn.

Einstaklingsbundin þjónusta

Loka þurfti nær öllum starfsstöðvum velferðarsviðs sem halda úti opinni starfsemi fyrir fólk sem er í viðkvæmri stöðu; eldri borgara eðafólk með undirliggjandi sjúkdóma. Það þýðir þó ekki að þjónustan hafi fallið niður heldur er unnið að því að veita hverjum og einum, sem áður sótti starfsstaði borgarinnar, einstaklingsbundna þjónustu. Sama má segja um þær þúsund fjölskyldur sem fá stuðningsþjónustu á vegum velferðarsviðs, s.s. stuðningsfjölskyldur, skammtímadvalir, námskeið og fl.

Mötuneyti félagsmiðstöðva fullorðinna eru lokuð en auglýsingar um hvernig sækja má um að fá heimsendan mat í staðinn hafa skilað því að nær tvöhundruð fleiri Reykvíkingar hafa bæst í þá þjónustu.

Þjónusta við heimilislausa með miklar og flóknar þjónustuþarfir hefur verið endurskipulögð og aukin.

Takk umönnunarstarfsfólk!

þúsundir Reykvíkinga fá áfram heimahjúkrun eða heimaþjónustu og þessa mikilvægu þjónustu þarf að tryggja á öllum tímum. Sama er að segja um þjónustu við fatlað fólk á heimilum sínum, í íbúðakjörnum og sambýlum. Fólk sem starfar við umönnun sinnir sínu starfi áfram og þarf að gera jafnvel þó einstaklingur sé í sóttkví eða með covid 19 smit. Meðan margar aðrar starfsstéttir geta lokað sig af, þá er það ekki val fyrir þessar mikilvægu umönnunarstéttir sem mér finnst reyndar að mættu fá mun meira hrós og athygli frá okkur hinum því rétt eins og hjá heilbrigðisstarfsfólki hefur álagið margfaldast í þeirra mikilvæga starfi. Takk, takk og aftur takk fyrir ykkar ómetanlega starf!

Áfram velferð

Við erum að upplifa nýjar áskoranir á degi hverjum en samstaðan um að vernda þá samborgara okkar sem tilheyra áhættuhópum er nánast áþreifanleg, bæði meðal þeirra sem starfa við umönnun og almennt í samfélaginu. Sannarlega mun þetta óvenulega tímabil reyna á, en við sem vinnum í velferðarmálum á vegum Reykjavíkurborgar erum staðráðin í að gera okkar besta. Við erum hér til þjónustu reiðubúin eins og alltaf.

Höfundur er borgarfulltrúi Samfylkingarinnar og formaður velferðarráðs Reykjavíkurborgar.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Skoðun

Sjá meira


×