Skoðun

Geðveikt álag

Sigrún Jónsdóttir skrifar

Það er álag að vera í námi. Nám er full vinna en í ofan á lag bætast við hlutastörf, félagsstörf, skuldbindingar gagnvart fjölskyldu og vinum og lengi mætti telja. Oftar en ekki verður til geðveikt álag. Þá skiptir sköpum að ná að hlúa að sinni geðheilsu, tala opinskátt um sína líðan og vita hvenær er tímabært að leita sér aðstoðar.

Það er hins vegar ekki sjálfsagt að leita sér aðstoðar og ýmislegt getur staðið þar í vegi. Fjárhagur getur til að mynda verið stór hindrun. Samkvæmt könnuninni EUROSTUDENT VI eru flestir íslenskir háskólanemar í launuðu starfi með námi. Hátt hlutfall stúdenta segist vinna til að hafa efni á háskólanáminu, eða 71%, sem er næsthæsta hlutfallið í EUROSTUDENT VI á eftir Noregi. Fjárhagsöryggi stúdenta stendur oft einnig höllum fæti ef marka má niðurstöður könnunarinnar þar sem stór hluti stúdenta á Íslandi glímir við mikla fjárhagserfiðleika, eða 34%. Aðgengileg og ódýr geðheilbrigðisúrræði eru því nauðsynleg.

Síðastliðin ár hefur aukin athygli færst að mikilvægi geðheilsu og sterkri geðheilbrigðisþjónustu. Stúdentar hafa tekið virkan þátt í umræðunni og lagt áherslu á geðheilbrigðismál í sinni hagsmunabaráttu, með góðum árangri. Bæði Háskóli Íslands og Háskólinn í Reykjavík hafa aukið við sín úrræði fyrir tilstuðlan stúdenta sem er fagnaðarefni. Það er þó enn langt í land þegar kemur að því að háskólasamfélagið bjóði upp á nóg af viðeigandi úrræðum fyrir stúdenta. Landssamtök íslenskra stúdenta vilja tryggja aðgengi stúdenta að geðheilbrigðisþjónustu á landsvísu innan hvers háskóla, ekki bara á tímum heimsfaraldurs, heldur einnig á tímum velsældar. Það er alltaf þörf á góðu aðgengi að geðheilbrigðisþjónustu og var sú þörf brýn áður en heimsfaraldur skók heimsbyggðina. Búast má við því að þörfin haldi áfram að vera mikil eftir að heimsbyggðin hefur ráðið niðurlögum faraldursins. Á tímum áfalla er þörfin fyrir aðgengilegri þjónustu þó gríðarlega mikil og verður geðheilbrigðisþjónusta innan háskólakerfisins að vera tilbúin að aðstoða stúdenta við að vinna úr slíkum áföllum.

Margt bendir nefnilega til þess að geðheilsu ungs fólks sé að hraka samkvæmt Embætti landlæknis og þegar kemur að geðröskunum skiptir lykilmáli að grípa snemma inn í. Rannsókn sem kannaði einkenni þunglyndis og kvíða í háskólanemum á Íslandi árið 2017 gaf til kynna að þriðjungur háskólanema glími við einkenni þunglyndis og fimmtungur við kvíða. Jafnframt gáfu niðurstöður EUROSTUDENT VI til kynna að tvöfalt fleiri stúdentar glími við andleg veikindi hérlendis samanborið við stúdenta á hinum Norðurlöndunum. EUROSTUDENT könnunin er yfirgripsmikil könnun sem er lögð fyrir stúdenta í 28 löndum og nær til fjölda félagslegra þátta. Ísland tók fyrst þátt í EUROSTUDENT VI sem gaf okkur loks dýrmætar upplýsingar um stúdentahópinn. Upplýsingar sem þarf að nýta. Sníða þarf viðeigandi þjónustu og úrræði að slíkum upplýsingum. Þörf á þjónustunni er augljós, sérstaklega þegar litið er til aukinnar aðsóknar að sálfræðiþjónustu HÍ, auk þess sem hún er að skila mælanlegum árangri með stöðluðum matskvörðum.

Mætum þörfinni og aðsókninni og tryggjum aðgengileg úrræði fyrir stúdenta á landsvísu.

Höfundur er forseti Landssamtaka íslenskra stúdenta - LÍS. Greinin er hluti af herferð samtakanna „Geðveikt álag“



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Skoðun

Sjá meira


×