Innlent

Stýrir bæjarstjórnarfundum frá eldhúsborðinu

Tryggvi Páll Tryggvason skrifar
Halla Björk Reynisdóttir er forseti bæjarstjórnarinnar á Akureyri.
Halla Björk Reynisdóttir er forseti bæjarstjórnarinnar á Akureyri. Vísir/Tryggvi

Bæjar- og sveitarstjórnir víða um land hafa þurft að bregðast við kórónuveirufaraldrinum með því að funda í gegnum netið. Ýmsir kostir, en líka gallar, fylgja fyrirkomulaginu að mati forseta bæjarstjórnar Akureyrar.

„Ég set þá fund í bæjarstjórn. Fundur númer 3473 og annar reglulegi fundurinn okkar sem við höldum hér í fjarfundarbúnaði.“

Á þessum orðum setti Halla Björk Reynisdóttir, forseti bæjarstjórnarinnar á Akureyri, síðasta bæjarstjórnarfund á Akureyri.

Yfirleitt kemur bæjarstjórnin saman til funda í sal í menningarhúsinu Hofi en vegna sóttvarna   hafa bæjarfulltrúar þurft að sitja síðustu fundi heima hjá sér, allt fer fram í gegnum tölvu. Í tilviki Höllu varð eldhúsborðið fyrir valinu. Hún segir ýmsa kosti fylgja fjarfundunum.

„Það eru margir kostir sem fylgja því að funda í fjarfundarbúnaði. Þeir verða að mörgu leyti styttri og hnitmiðaðri fundirnir. Eins og það að maður geti bara klætt sig að ofan og bara verið á inniskómum eins og hérna núna fyrir bæjarstjórnarfund,“ segir Halla og hlær.

En, það kemur þó fátt í stað mannlegra samskipta, í persónu.

„Maður er svolítið farið að þrá það að hitta fólk í persónu, það er mjög gaman að sjá þig til dæmis en auðvitað eru einhverjir ókostir eins og tæknileg vandamál og sérstaklega fyrst þegar fólk er að byrja að prófa,“ sagði Halla við fréttamann þegar hann fylgdist með síðasta bæjarstjórnarfundi.

Kjörnir fulltrúar á landsbyggðinni þurfa iðulega að sækja ýmsa fundi í höfuðborginni. Halla telur að í þeim efnum geti fjarfundartæknin áfram spilað lykilhlutverk, eftir að faraldurinn líður hjá.

„Það held ég að sé alveg ótvírætt kostir hvað varðar fundi sem við þurfum að sækja mjög oft suður. Það eru allir komnir með þessa tækni á hreint og við getum þá nýtt okkur það í framhaldinu.“



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×