Viðskipti erlent

Frá Abu Dhabi til Íslands með lággjaldafélagi og einu stoppi

Stefán Ó. Jónsson skrifar
Wizz air stefnir á stórsókn frá Abu Dhabi.
Wizz air stefnir á stórsókn frá Abu Dhabi. Wiki commons

Lággjaldaflugfélagið Wizz Air mun í sumar hefja flug frá fimm áfangastöðum flugfélagsins í Evrópu til Abu Dhabi í Sameinuðu arabísku furstadæmunum. Flugfélagið flýgur til Íslands og munu landsmenn því geta flogið til Abu Dhabi með einni millilendingu. Nýjar vélar flugfélagsins eru jafnvel taldar geta boðið beint flug frá Íslandi til Abu Dhabi frá og með árinu 2023.

Wizz Air mun hefja flug til borgarinnar frá Búkarest í Rúmeníu og Búdapest í Ungverjalandi þann 3. júní næstkomandi. Flugfélagið mun jafnframt fljúga til Abu Dhabi frá pólsku borginni Katowice, búlgörsku höfuðborginni Sofiu og Cluj-Napoca í Rúmeníu frá og með september.

Forstjóri Wizz Air segir að ákveðið hafi verið að leggja aukinn metnað í þessar áætlanir, þrátt fyrir yfirstandandi kórónuveirufaraldur. Flugfélagið sé með þessu að bjóða upp á áður óþekktan valkost í lággjaldaflugi og að Wizz Air bindi miklar vonir við Abu Dhabi. Flugfélagið sé jafnframt vel statt. „Þó svo að vélarnar yrðu kyrrsettar í 18 mánuði þá yrðum við áfram í rekstri, slík er lausafjárstaðan okkar,“ segir forstjórinn Józef Váradi.

Til stendur að fljúga tvisvar í viku milli Abu Dhabi og fyrrnefndu borganna fimm en þegar fram líða stundir verður ferðum til Búdapest og Búkarest fjölgað í þrjár á viku. Ætlað er að leiðirnar fimm muni auka flutningsgetuna til og frá Abu Dhabi um næstum 200 þúsund ferðamenn á ári.

Wizz Air flýgur Airbus A320-þotum þessa stundina en flugmálasérfræðingar telja að flugfélagið muni reiða sig á A321neo-vélar í fluginu til Abu Dhabi. Er þar um að ræða sömu vélar og WOW air heitið notaði í lengri ferðum þess, t.a.m. til vesturstrandar Bandaríkjanna.

Þá hefur Wizz Air pantað Airbus A321XLR-þotur sem væntanlegar eru frá og með árinu 2023. Þær eru taldar gera flugfélaginu kleift að bjóða upp á enn lengri flugferðir; jafnvel alla leið frá Abu Dhabi til Íslands eða Kanaríeyja. Að sama skapi gæti Wizz Air reitt sig á vélarnar til að bjóða upp á flug á áfangastaði austar í Asíu. Evrópubúar, Íslendingar kannski þar með taldir, mega því búast við að geta flogið með lággjaldaflugfélagi langar vegalengdir með fáum viðkomustöðum áður en langt um líður.

Fluggeta Airbus A321XLR-þotanna er talin vera rúmlega 8700 kílómetrar.gc maps




Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×