Heimsmarkmiðin

Spurningakeppni í Mangochi

Heimsljós
Keppendur og skipuleggjendur voru hinir ánægðustu með framtakið.
Keppendur og skipuleggjendur voru hinir ánægðustu með framtakið.

Árleg spurningakeppni er skipulögð af menntaskrifstofu Mangochi-héraðs sem nýtur stuðnings og fjármagns frá Íslandi.

Bráðskemmtilegri spurningakeppni tólf skóla í Mangochi-héraði, samstarfshéraðs Íslands í Malaví, lauk á dögunum þar sem nemendur í efri bekkjum grunnskóla fengu að spreyta sig. Þessi árlega keppni er skipulögð af menntaskrifstofu Mangochi-héraðs sem nýtur stuðnings og fjármagns frá Íslandi í verkefnastoðinni „Mangochi Based Service Programme II“. Mphatso Sokosa, verkefnisfulltrúi sendiráðs Íslands í Lilongwe, var heiðursgestur á lokaviðburði keppninnar.

Skólarnir sem kepptu til úrslita voru frá sveitahéruðunum Koche, Chimwala, St. Joseph og Chimbende en áður höfðu farið fram undankeppnir þar sem tólf skólar, sem allir njóta stuðnings frá Íslandi, kepptu sín á milli.

Makawa-grunnskólinn frá Koche stóð á endanum uppi sem sigurvegari en Changamire-grunnskólinn í Chimwala varð í öðru sæti. Alls stunda tæplega 30 þúsund nemendur nám í grunnskólunum tólf eða rúmlega tvöfalt fleiri en í öllum grunnskólum Reykjavíkur.

Skipulag keppninnar var hið glæsilegasta og lögðu fjölmargir hönd á plóg. Fjallað var um spurningakeppnina í fjölmiðlum á svæðinu t.d. á héraðsútvarpsstöðinni Radio Lilanguka auk þess sem ríkissjónvarp Malaví, MBC TV, gerði spurningakeppninni góð skil.

Þessi grein er hluti af samstarfi Vísis og utanríkisráðuneytisins um miðlun frétta af þróunarsamstarfi Íslands um allan heim. Fréttin birtist fyrst í Heimsljósi, upplýsingaveitu utanríkisráðuneytisins um þróunar- og mannúðarmál.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.



×