Sport

Norðmaðurinn ungi setti Evrópu- og Ólympíumet er hann hlaut gull

Valur Páll Eiríksson skrifar
Ingebrigtsen var magnaður í hlaupi dagsins.
Ingebrigtsen var magnaður í hlaupi dagsins. Patrick Smith/Getty Images

Hinn tvítugi Jakob Ingebrigtsen hlaut í dag gull í 1500 metra hlaupi karla á Ólympíuleikunum í Tókýó. Hann var aðeins tveimur sekúndum frá heimsmeti en bætti bæði Evrópu- og Ólympíumet með frábæru hlaupi.

Ingebrigtsen tók forystuna í upphafi í mjög hröðu hlaupi í dag. Heimsmeistarinn Timothy Cheruiyot frá Kenýa fór hins vegar fram úr honum á öðrum hring og þeir tveir stungu af þegar leið á. Cheruiyot hélt forystunni allt þar til rúmir 100 metrar voru eftir.

Þá fór Ingebrigtsen á fullt og fór fram úr Cheruiyot. Hann kom lang fyrstur í mark á nýju Evrópumeti og Ólympíumeti. Hann var þá ekki langt frá heimsmetinu. Cheruiyot stífnaði upp og var nálægt því að missa Bretann Josh Kerr sem tók mikinn sprett á lokametrunum en þeir komu í mark á nánast sama tíma.

Tími Ingebrigtsens var 3:28,33. Hann var því rúmum tveimur sekúndum frá heimsmeti Marokkómannsins Hicham El Guerrouj frá 1998 upp á 3:26,00. Hann bætti hins vegar Ólympíumetið, sem var 3:31,65, um rúmar þrjár sekúndur.

Cheriyot kom í mark á 3:29,01, aðeins fjórum hundruðustu á undan Josh Kerr sem kom í mark á 3:29,05.

Ríkjandi heimsmeistarinn og silfurverðlaunahafi dagsins, Timothy Cheruiyot, óskar Ingebrigtsen til hamingju með árangurinn.Cameron Spencer/Getty Images

Ingebrigtsen er annar Norðmaðurinn sem vinnur til gullverðlauna í frjálsum íþróttum á leikunum, á eftir grindahlauparanum Karsten Warholm sem vann 400 metra grindahlaup á nýju heimsmeti. Þá hlaut Eivind Henriksen silfur í sleggjukasti og verðlaun Norðmanna í frjálsum íþróttum á leikunum því þrjú talsins.

Aðrir Norðmenn til að hljóta verðlaun á leikunum eru Kristian Blummenfelt sem fagnaði sigri í þríþraut, Anders Mol og Christian Sörum unnu gull í strandblaki, Kjetil Borch hlaut silfur í róðri og Hermann Tomasgaard hlaut brons í siglingum.


Tengdar fréttir

Sá norski tileinkaði silfrið látnum þjálfara sínum

Pólverjinn Wojciech Nowicki er Ólympíumeistari karla í sleggjukasti eftir að hafa bætt sinn besta árangur í greininni í dag. Norðmaðurinn Eivind Henriksen bætti sinn árangur umtalsvert og bætti Noregsmetið í greininni fjórum sinnum til að hljóta silfur.

Norðmaðurinn með heimsmet og Ólympíugull

Karsten Warholm tryggði sér Ólympíugull í Tókýó í nótt um leið og hann var fyrsti maður sögunnar sem hleypur 400 metra grindahlaup á undir 46 sekúndum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×