Innlent

Selur inn­búið úr kyn­lífs­her­berginu: „Það á ekki að dæma fólk fyrir það sem það gerir í svefn­her­berginu“

Elísabet Inga Sigurðardóttir skrifar
Innbúið er til sölu og finnur eigandinn fyrir miklum áhuga á því.
Innbúið er til sölu og finnur eigandinn fyrir miklum áhuga á því. visir

Innbú úr sérhönnuðu kynlífsherbergi er nú til sölu. Mikill áhugi er á herlegheitunum en kostnaðarverð hlutanna hleypur á hálfri milljón. Eigandi herbergisins segir þörf á sambærilegu athvarfi og vill opna á umræðu um kynlíf.

Kross, bekkur og stærðarinnar rúm

„Í rúmt ár hefur fólki staðið til boða að leigja þetta herbergi til þess að stunda kynlíf. Þeir sem vilja prufa það og hafa ekki prufað eru á síðasta séns vegna þess að núna er innbúið til sölu. Þar á meðal þessi róla og eins og sönnum rannsóknarblaðamanni sæmir ætla ég að sjálfsögðu að prufa þetta tryllitæki sem allir geta nú keypt.“

Í herberginu má auk rólunnar finna kross, bekk og stærðarinnar rúm líkt og sést á þessum myndum. Eigandi herbergisins auglýsti innbúið og starfsemina til sölu á Facebook. Auglýsingin vakti mikla athygli en yfir þúsund manns hafa skrifað athugasemd við færsluna. En hvers konar starfsemi er þetta?

„Þetta er bara kynlífsherbergi. Rými sem fólk getur komið í og gert hluti sem það langar til,“ segir Konráð Logn Haraldsson, athafnamaður.

Pör nýti sér herbergið

Hvers vegna ákvaðst þú að fara af stað með svona starfsemi?

„Mér fannst þetta bara vanta. Og ég þekki það sjálfur að vera með börn á heimilinu og þurfa smá næði. Gera öðruvísi hluti en maður gerir heima hjá sér.“

Leigjendur greiða fyrir hvern klukkutíma sem kostar fimmtán þúsund krónur. Konráð segir að allir þjóðfélagshópar nýti sér þjónustuna en að pör séu í miklum meirihluta. Starfsemin hafi gengið vel en aðsókn sé sveiflukennd.

„Það sem kom mér mest á óvart, eftir áramótin þá veit ég ekki hvað gerðist. Þá fór bara allt að rokseljast. Þannig þetta kemur í bylgjum.“

Veistu hvers vegna það var? 

„Nei ég tékkaði á fréttum en það var ekkert sem „triggeraði.“ Fólki leiðist held ég eða kannski mikil spenna eftir jólin.“

„Á ekki að dæma fólk fyrir það sem það gerir í svefnherberginu“

Nú sé kominn tími til að loka rekstrinum og snúa sér að öðru. Konráð segir að fólk hafi flest tekið vel í starfsemina þó hann finni fyrir gagnrýnisröddum.

„Það er margt miðaldra fólk sem finnst þetta bara ekki í lagi. Mikið af fólki sem á eldri börn og ræða ekki kynlíf við hvort annað því það er óviðeigandi. Þetta á ekki að vera óviðeigandi.“

Hann telur mikilvægt að opna á umræðu um kynlíf.

„Mjög mikilvægt. Það á ekki að dæma fólk fyrir það sem það gerir í svefnherberginu, alls ekki.“



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×