Sport

Stærsta boxmót ársins haldið í Kaplakrika á morgun: „Ég er að flytja inn boxþjálfarann hans Connor McGregor“

Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar
Davíð Rúnar Bjarnason stendur fyrir mótinu.
Davíð Rúnar Bjarnason stendur fyrir mótinu. Mynd/Skjáskot

Bestu hnefaleikakappar landsins munu berjast á stærsta boxmóti ársins sem haldið er í Kaplakrika á morgun. Davíð Rúnar Bjarnason, yfirþjálfari Hnefaleikafélags Reykjavíkur, stendur fyrir mótinu og segir hann mikið lagt í kvöldið.

„Við ætlum bara að koma af stað svona alvöru „box-show“ menningu,“ sagði Davíð í samtali við Stöð 2.

„Einu sinni á ári verður haldið svona Icebox eins og það heitir, Klakaboxið, og gefur öllum í íþróttinni tækifæri til að láta ljós sitt skína. Ekki bara fullorðna fólkið heldur unga kynslóðin líka.“

„Allir fá að labba inn með svona töffaralag og stemningu. Það eru verðlaun fyrir alla, VIP sæti og stúkusæti og það verður svona alvöru rokk. Það er kominn tími á þetta.“

Davíð ætlar sér að fara alla leið með hugmyndina, og er meðal annars búinn að sannfæra boxþjálfara eins þekktasta bardagamanns heims um að mæta.

„Ég er að flytja inn boxþjálfarann hans Connor McGregor, Phil Sutcliffe, og hann er að koma með tvo Íra með sér. Aðalbardaginn á morgun verður Ísland-Írland. Það er bara þjóðsöngurinn og stemning.“

En hverjir eru það sem munu berjast þar?

„Hann heitir Michael McCrain sem keppir á móti Steinari Thors í aðalbardaganum og svo er það Craig Kavanagh á móti Emin Kadri, báðir íslenskir landsliðsmenn. Og það eru nokkrir íslenskir landsliðsmenn að keppa á morgun.“

Lét útbúa alvöru verðlaunagrip

Davíð lét útbúa belti eins og alvöru hnefaleikameistara sæmir.Mynd/skjáskot

„Ég er ekkert að grínast hérna. Ég ákvað að taka þetta bara alla leið og hnefaleikamaður eða -kona kvöldsins hlýtur þetta belti. Fyrsta Icebox Champion beltið, eða klakabox meistarinn, og fær þetta belti til eignar. Ásamt alveg massívum verðlaunapakka frá samstarfsaðilum og styrktaraðilum mótsins.“

Viðtalið við Davíð má sjá í heild sinni í spilaranum hér fyrir neðan.

Klippa: Davíð Rúnar - Klakabox



Fleiri fréttir

Sjá meira


×