Telur verulega hættu á nýjum stríðsátökum í Bosníu og Hersegóvínu Gunnar Reynir Valþórsson skrifar 2. nóvember 2021 08:01 Fulltrúar EUFOR, friðargæslusveitar á vegum Evrópusambandsins í Bosníu og Hersegóvínu, telja nú um sjö hundruð. Getty Hætta er á því að Bosnía og Hersegóvína brotni upp í smærri einingar og verulegar líkur eru taldar á því að stríðsátök brjótist þar út á ný.
Þetta segir Christian Schmidt, sendifulltrúi Sameinuðu þjóðanna í Bosníu í nýrri skýrslu. Schmidt bendir á að aðskilnaðarsinnar Serba í landinu hafi hug á því að stofna eigin her, eða kljúfa núverandi her í tvennt eftir þjóðerni. Gangi það eftir verði Sameinuðu þjóðirnar að bæta í friðargæslusveitir sínar í landinu. Nú eru um sjö hundruð friðargæsluliðar í Bosníu en það fyrirkomulag kemur til endurskoðunar í öryggisráði Sameinuðu þjóðanna síðar í vikunni. Rússar hafa lýst sig andsnúna því að fyrirkomulagið verði áfram með sama hætti og verið hefur. Leiðtogi Bosníu Serba, Milorad Dodik, hefur hótað því að draga Serba út úr öllum ríkisstofnununum, þar á meðal hernum og vill hann að stjórnarherinn hafi sig á brott frá þeim hluta landsins þar sem Serbar búa en í Bosníu Hersegóvínu búa auk Serba Bosníumenn og Króatar. Hann hefur einnig talað fjálglega um að hann eigi vini sem muni aðstoða Serba í baráttu sinni, og á þar væntanlega við Rússa.
Bosnía og Hersegóvína Sameinuðu þjóðirnar Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Sat saklaus í unglingafangelsi í tvö ár Innlent Mikill viðbúnaður vegna bráðra veikinda Innlent Íransforseti fórst í þyrluslysinu Erlent Saksóknari Alþjóðlega sakamáladómstólsins vill handtaka Netanjahú og Hamas-liða Erlent Tveir látnir og fimm saknað eftir slys í Dóná Erlent Leitin enn ekki borið árangur Erlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent Erfitt að ímynda sér meiri harðlínumann en Raisi Innlent „Ég stóð bara með sóttvarnalækni“ Innlent Diddy biðst afsökunar á „ófyrirgefanlegri hegðun“ Erlent Fleiri fréttir Saksóknari Alþjóðlega sakamáladómstólsins vill handtaka Netanjahú og Hamas-liða Komst loks út í geim sextíu árum síðar Íransforseti fórst í þyrluslysinu Leitin enn ekki borið árangur Tveir látnir og fimm saknað eftir slys í Dóná Diddy biðst afsökunar á „ófyrirgefanlegri hegðun“ Óljóst hvort þyrlan sé fundin Íranski forsetinn í óljósu þyrluslysi Færeyingar draga í land með ferðamannaskatt Bæjarstjóri sakaður um að vera njósnari: „Enginn veit hver hún er“ Gantz hótar að segja af sér vegna ósættis við Netanjahú Ástand Fico enn alvarlegt Býst við aukinni sókn Rússa Beitti neitunarvaldi gagnvart umdeildum fjölmiðlalögum Myndband sýnir árás Diddy Færeyingar felldu frumvarp um fóstureyðingar Þrjátíu ár fyrir árásina á mann þingforsetans Segir Rússa ekki hafa í hyggju að taka Kharkív Viðtal á Stöð 2 kveikir upp í færeyskum stjórnmálum Reyndi að kveikja í bænahúsi gyðinga og var skotinn til bana Spánverjar neita skipi með vopn innanborðs um að leggja að bryggju „Einfari“ ákærður fyrir tilræðið við Fico Hver er Robert Fico? Neyðarástandi lýst yfir á Nýju-Kaledóníu eftir miklar óeirðir Ágreiningur innan stjórnarinnar brýst upp á yfirborðið Hægriflokkar ná saman um myndun ríkisstjórnar Samið um kappræður í júní og september Fico ekki talinn í lífshættu Þróun ES-30 flugvélarinnar flutt frá Svíþjóð til Kaliforníu Þetta er vitað um árásarmanninn Sjá meira
Saksóknari Alþjóðlega sakamáladómstólsins vill handtaka Netanjahú og Hamas-liða Erlent
Saksóknari Alþjóðlega sakamáladómstólsins vill handtaka Netanjahú og Hamas-liða Erlent