Bíó og sjónvarp

Ertu íslensk? Ósýnilegu konurnar stíga fram

Heiðar Sumarliðason skrifar
Fjórar erlendar konur sem búa á Íslandi
Fjórar erlendar konur sem búa á Íslandi

Magnea Björk Valdimarsdóttir sendi nýverið frá sér heimildamyndina Hvunndagshetjur (Are You Icelandic?). Myndin hefur m.a. unnið til verðlauna á kvikmyndahátíðum í Barcelona og París.

Magnea útskrifaðist sem leikkona frá Listaháskóla Íslands árið 2006 en skipti um kúrs árið 2011 og fór að gera heimildamyndir. Hún hóf svo nám í kvikmyndagerð við háskóla í Marseille árið 2014. Eftir að hún sneri aftur heim upplifði hún sig sem hálfgerðan útlending í eigin landi, í faglegum skilningi. Hún ákvað því að skoða hlutskipti hinna raunverulegu erlendu kvenna sem eru hinir bókstaflegu ósýnilegu útlendingar hér á landi. 

En Magnea segir: „Konur af erlendum uppruna í þjónustustörfum ættu skilið að fá meira pláss og virðingu. Þetta eru manneskjurnar sem verða því miður oftast fyrir misrétti og ofbeldi í samfélaginu.“

Hún fylgdi eftir þeim Karolina Von Mrozik Gliszczynska, Ayse Ebru Gurdemir, Maria Victoria Ann Campbell og Zineta Pidzo Čogić, en þær eru fæddar í Póllandi, Tyrklandi, Jamaíka og Bosníu. 

Meðframleiðendur eru Júlíus Kemp og María Lea Ævarsdóttir, en myndin er framleidd með styrk frá Kvikmyndamiðstöð Íslands.

Afraksturinn er nú til sýnis í Bíó Paradís og hér má sjá stiklu úr myndinni.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×