Körfubolti

Kallar á sautján ára stelpu til að koma inn fyrir Helenu

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Emma Sóldís Svan Hjördísardóttir á ferðinni með boltann í leik með Fjölni í Subway-deildinni.
Emma Sóldís Svan Hjördísardóttir á ferðinni með boltann í leik með Fjölni í Subway-deildinni. Vísir/Bára

Helena Sverrisdóttir getur ekki spilað með íslenska körfuboltalandsliðinu í þessum landsleikjaglugga og því varð landsliðsþjálfarinn Benedikt Guðmundsson að gera breytingu á hópnum sínum.

Benedikt ákvað að kalla á nýliðann Emmu Sóldísi Svan Hjördísardóttur en fyrir í hópnum voru þrír nýliðar. Íslenska liðið er komið til Rúmeníu þar sem liðið leikur fyrsta leik sinn í undankeppni EM, EuroBasket 2023, gegn heimastúlkum frá Rúmeníu.

Helena er að glíma við hnémeiðsli og hefur misst af síðustu leikjum Haukaliðsins. Það er mikill missir fyrir bæði Hauka og landsliðið að vera án síns besta leikmanns.

Emma Sóldís kemur þarna inn fyrir reyndasta leikmann landsliðsins en Emma er aðeins sautján ára gömul. Hún hefur skorað 11,0 stig að meðaltali með Fjölni í Subway-deildinni á þessu tímabili.

Alls eru því fjórir nýliðar í hópnum en ásamt Emmu Sóldísi eru þær Dagný Lísa Davíðsdóttir, Elísabeth Ýr Ægisdóttir og Anna Ingunn Svansdóttir nýliðar og munu leika sinn fyrsta landsleik á fimmtudaginn.

íslenska fararteymið og tíu leikmenn ferðuðust í gær frá Íslandi og hittu Söru Rún Hinriksdóttur, sem leikur í Rúmeníu, og Þóru Kristínu Jónsdóttur, sem kom frá Danmörku, í Rúmeníu í lok ferðalagsins.

Íslenski hópurinn ferðaðist með starfsmönnum og fylgdarteymi KSÍ frá Íslandi en karlalandsliðið á einmitt líka leik gegn Rúmeníu á fimmtudaginn, og því verða tveir landsleikir í Búkarest þann daginn milli Rúmeníu og Íslands. Smá töf var á seinna flugi dagsins vegna vélarbilunar á leiðinni frá London en hóparnir komust á leiðarenda að lokum.

  • Íslenski landsliðshópurinn:
  • Anna Ingunn Svansdóttir · Keflavík (Nýliði)
  • Ásta Júlía Grímsdóttir · Valur (2)
  • Bríet Sif Hinriksdóttir · Haukar (6)
  • Dagbjört Dögg Karlsdóttir · Valur (8)
  • Dagný Lísa Davíðsdóttir · Fjölnir (Nýliði)
  • Embla Kristínardóttir · Skallagrímur (21)
  • Emma Sóldís Svan Hjördísardóttir · Fjölnir (Nýliði)
  • Elísabeth Ýr Ægisdóttir · Haukar (Nýliði)
  • Hallveig Jónsdóttir · Valur (25)
  • Lovísa Björt Henningsdóttir · Haukar (6)
  • Sara Rún Hinriksdóttir · Phoenix Constanta, Rúmenía (23)
  • Þóra Kristín Jónsdóttir · AKS Falcon, Danmörk (21)


  • Hildur Björg Kjartansdóttir, Isabella Ósk Sigurðardóttir og Helena Sverrisdóttur eru á meiðslalista og geta ekki leikið. Sigrún Björg Ólafsdóttir, sem leikur í háskóla í USA, var valin í hópinn, en gat ekki tekið þátt að þessu sinni v/ anna með skólanum úti.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×