Innlent

Forseti ASÍ og framkvæmdastjóri SA takast á í Pallborðinu

Heimir Már Pétursson skrifar
Á sama tíma og forysta verkalýðshreyfingarinnar kallar eftir kjarabótum vegna hækkunar vaxta segir forysta atvinnulífsins að ekki sé innistæða fyrir öllum þeim launahækkunum sem eiga eftir að koma til framkvæmda samkvæmt lífskjarasamningunum frá árinu 2019.
Á sama tíma og forysta verkalýðshreyfingarinnar kallar eftir kjarabótum vegna hækkunar vaxta segir forysta atvinnulífsins að ekki sé innistæða fyrir öllum þeim launahækkunum sem eiga eftir að koma til framkvæmda samkvæmt lífskjarasamningunum frá árinu 2019. Vísir

Seðlabankastjóri varpaði sprengju inn í stöðuna á vinnumarkaði í gær þegar hann sagði óheppilegt að launafólk fengi greiddan hagvaxtarauka ofan á laun sín næsta vor. Drífa Snædal forseti Alþýðusambandsins og Halldór Benjamín Þorbergsson framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins mæta í beina útsendingu í Pallborðinu á Vísi í dag til að ræða vaxandi óróa í samskiptum aðila vinnumarkaðarins.

Samkvæmt lífskjarasamningunum frá árinu 2019 á launafólk að njóta aukins hagvaxtar milli áranna 2020 og 2021 með svo kölluðum hagvaxtarauka sem leggist ofan á taxta og mánaðarlaun í maí á næsta ári. Greiðslurnar geta verið allt frá 2.250 krónum upp í 13 þúsund krónur. Þær greiðslur kæmu til viðbótar almennum launahækkunum um áramótin.

Forystufólk í verkalýðshreyfingunni hefur mótmælt vaxtahækkunum Seðlabankans undanfarið sem hækkaði meginvexti sína í fjórða skiptið á þessu ári í gær og þá um 0,5 prósentur. Drífa Snædal forseti Alþýðusambandsins og Ragnar Þór Ingólfsson formaður VR hafa sagt að aukin útgjöld heimilanna vegna hækkunar vaxta verði sótt í næstu kjarasamningum sem þegar er byrjað að undirbúa.

Ásgeir Jónsson segir mikla hækkun á verði íbúðarhúsnæðis, hrávöru í útlöndum og miklar launahækkanir sameiginlega kynda undir verðbólgunni. Fullyrðingar um áhrif launa hafa ekki vakið mikla gleði í ranni verkalýðsforystunnar.Vísir/Vilhelm

Þar má því reikna með að mætist stálin stinn því Samtök atvinnulífsins hafa haldið því fram allt frá því kórónuveirufaraldurinn skall á með tilheyrandi falli havaxtar í fyrra að ekki væri innistæða fyrir öllum þeim launahækkunum sem samið var um í lífskjarasamningunum.

Heimir Már Pétursson fréttamaður fær Drífu og Halldór Benjamín í beina útsendingu í Pallborðinu á Vísi og Stöð 2/Vísi klukkan 14:00 í dag. Reikna má með að þau takist á um þær launahækkanir sem eiga eftir að koma til framkvæmda á samningstímanum og hagvaxtaraukan sem koma á til framkvæmda næsta vor.


Tengdar fréttir

Seðlabankastjóri: „SA sömdu klárlega af sér"

„Ég er hissa að séu stórar yfirlýsingar um að himinn og jörð séu að farast þegar við erum fyrirsjáanlega að hækka vexti núna. Vextir eru í 2 prósentum. Þeir voru í 4,5 prósentum þegar Lífskjarasamningurinn var gerður. Mér finnst svona yfirlýsingar úr korti við alla skynsemi og úr takti við raunveruleikann,” sagði Ásgeir Jónsson, Seðlabankastjóri á fundi Viðskiptaráðs Íslands sem fram fór í morgun og bar yfirskriftina Er vinnumarkaðurinn týndi hlekkurinn?

Komi ekki til greina að henda hag­vaxtar­aukum út um gluggann

Forseti ASÍ segir ekki koma til greina að hagvaxtaraukar, sem samið var um í lífskjarasamningunum, verði felldir úr gildi. Seðlabankastjóri sagði fyrr í dag að hagvaxtaraukarnir væru óheppilegir fyrir verðbólguþróunina. 

Seðlabankastjóri segir óheppilegt að launafólk fái hagvaxtarauka

Seðlabankastjóri segir óheppilegt að laun hækki næsta vor með svo kölluðum hagvaxtarauka sem samið var um í lífskjarasamningunum. Miklar launahækkanir, hækkun á verði íbúðarhúsnæðis og hrávöru í útlöndum kyndi undir verðbólgunni.

Versnandi verð­bólgu­horfur

Verðbólguhorfur hafa versnað frá spá Seðlabanka Íslands í ágúst sem reiknar með að hún verði komin upp í 4,7 prósent undir lok þessa árs. Viðvarandi hækkun húsnæðisverðs og launa og verðs á hrávörum í útlöndum eru meginforsendurnar fyrir því að Seðlabankinn hækkaði meginvexti sína í morgun um 0,5 prósentustig.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×