Erlent

Leið­togi stjórnar­and­stöðunnar dæmdur í á­tján ára fangelsi

Atli Ísleifsson skrifar
Sergei Tikhanovsky bauð sig fram gegn Aleksandr Lúkasjenka í forsetakosningunum í ágúst 2020, en var handtekinn áður en til þeirra kom.
Sergei Tikhanovsky bauð sig fram gegn Aleksandr Lúkasjenka í forsetakosningunum í ágúst 2020, en var handtekinn áður en til þeirra kom. EPA

Dómstóll í Hvíta-Rússlandi dæmdi í dag leiðtoga stjórnarandstöðunnar í landinu, Sergei Tikhanovsky, í átján ára fangelsi fyrir að hafa skipulagt óeirðir og mótmæli gegn forsetanum Alexandr Lúkasjenka.

Tikhanovsky bauð sig fram gegn Lúkasjenka í forsetakosningunum 2020, en var handtekinn áður en til þeirra kom og meinað að bjóða sig fram áður en Hvít-Rússar gengu að kjörborðinu.

Eiginkona hans, Svetlana Tikhanovskaya, bauð sig þá fram gegn Lúkasjenka, en forsetinn lýsti yfir sigri í kosningunum. Niðurstöður kosninganna hafa verið dregnar verulega í efa bæði af stjórnarandstöðunni og alþjóðasamfélaginu.

Tikhanovskaya lýsti einnig yfir sigri í kosningunum, en flúði land daginn eftir kosningarnar þar sem hún óttaðist um öryggi sitt og barnanna.

Tikhanovskaya dró svo lögmæti dómstólsins sem réttaði yfir eiginmanni sínum í efa í dag og sagði á Twitter að dómurinn jafnaðist á við „hefnd“ forsetans Lúkasjenka.

„Á meðan hann felur pólitíska fanga og réttar yfir þeim fyrir luktum dyrum, þá vonast hann til að halda kúguninni hljóðlátlega áfram. En heimurinn allur fylgist með. Við hættum ekki,“ sagði Tikhanovskaya.

Í frétt BBC segir að dómurinn yfir Tikhanovsky hafi fallið í dómstól í bænum Gomel í suðausturhluta landsins. Auk Tikhanovsky voru fimm liðsmenn stjórnarandstöðunnar dæmdir í fjórtán til sextán ára fangelsisvistar.

Lúkasjenka hefur stýrt Hvíta-Rússlandi frá árinu 1994.


Tengdar fréttir

Fjöldahandtökur, ofbeldi og landflótti

Í dag er liðið ár síðan umdeildar forsetakosningar í Hvíta-Rússlandi fóru fram. Síðan þá hefur mikil stjórnmálaóreiða ríkt í landinu með fjöldahandtökunum, landflótta og hremmingum.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×