Innlent

Hvetur fyrirtæki til að deila reynslu sinni verði þau fyrir tölvuárás

Berghildur Erla Bernharðsdóttir skrifar
Valdimar Óskarsson framkvæmdastjóri netöryggisfyrirtækisins Syndis segir að óprúttnum aðilum þegar hafi tekist að brjótast inn í eitt kerfi hér á landi en eldveggur hafi komið í veg fyrir gagnaleka.
Valdimar Óskarsson framkvæmdastjóri netöryggisfyrirtækisins Syndis segir að óprúttnum aðilum þegar hafi tekist að brjótast inn í eitt kerfi hér á landi en eldveggur hafi komið í veg fyrir gagnaleka. Vísir/Arnar

Framkvæmdastjóri netöryggisfyrirtækisins Syndis ráðleggur forráðamönnum fyrirtækja að gera ráð fyrir að tölvukerfi þeirra hafi orðið fyrir tölvuárás. Öryggisbrestur sem uppgötvaðist fyrir nokkrum dögum muni valda skaða. 

Valdimar Óskarsson framkvæmdastjóri netöryggisfyrirtækisins Syndis segir að óprúttnum aðilum þegar hafi tekist að brjótast inn í eitt kerfi hér á landi en eldveggur hafi komið í veg fyrir gagnaleka. Hann segir þúsundir tölva og kerfa hér á landi með veikleikann og búast megi við fjölda árása á næstu vikum eða mánuðum.

„Við eigum eftir að sjá gríðarlegt magn árása.  Það er fullt af óprúttnum aðilum þarna úti sem eru að leita að kerfum sem eru veik gagnvart þessum veikleika. Þeir eru búnir að koma fyrir óværu og svo geta þeir tengst þeim og gert nánast hvað sem er á viðkomandi tölvu og viðkomandi netkerfi. Það verður einhver skaði þannig er það bara,“ segir Valdimar.

Hann ráðleggur fyrirtækjum eftirfarandi:

„Gerið bara ráð fyrir að það sé búið að hakka ykkur, farið yfir atvikaskrár, er eitthvað búið að gerast, er eitthvað óeðlilegt.

Valdimar leggur áherslu að lendi fyrirtæki í þessu eigi þau alls ekki að fela það.

„Ég vil hvetja forráðamenn fyrirtækja til að tala um það lendi þau í árásum, það er ekki feimnismál. Við lærum best sem samfélag ef við deilum reynslu af slíkum glæpum. Í þv´ifelst besta forvörnin,“ segir hann. 


Tengdar fréttir

Upplýsingar um landsmenn í hættu

Hætta er á að persónugreinarlegar upplýsingar um landsmenn leki úr tölvukerfum að sögn framkvæmdastjóra Syndis. Afar mikilvægt sé að fyrirtæki og stofnanir vakti kerfin sín allan sólarhringinn og láti greina hvort að þær hafi verið sýktar af óprúttnum aðilum.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×