Sport

Ó­trú­leg endur­koma Nadal | Kominn fram úr Djoko­vic og Federer

Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar
Rafael Nadal fagnar ótrúlegri endurkomu sinni.
Rafael Nadal fagnar ótrúlegri endurkomu sinni. Mark Metcalfe/Getty Images

Rafael Nadal lenti tveimur settum undir gegn Daniil Sergeyevich Medvedev í úrslitum Opna ástralska meistaramótsins í tennis í dag. Hinn þaulreyndi Nadal gafst ekki upp og átti eina mögnuðustu endurkomu síðari ára.

Nadal hóf úrslitaviðureignina vægast sagt á afturfótunum en ekkert gekk upp hjá hinum 35 ára gamla Spánverja í upphafi. Rússinn Medvedev er áratug yngri en Nadal og virtist einfaldlega hafa meiri orku framan af leik.

Eftir að annað sett fór í upphækkun hefði áhorfendum verið fyrirgefið fyrir að halda að allur vindur væri úr Nadal en hann vann næsti þrjú sett, 6-4, 6-4 og 7-5, og tryggði sér þar með sigur á Opna ástralska meistaramótinu í tennis árið 2022.

Sigur dagsins þýðir að Nadal hefur nú unnið 21 risatitil. Enginn hefur unnið fleiri risatitla í einliðaleik karla. Bæði Roger Federer og Novak Djokovic hafa unnið 20 risatitla en Djokovic hefur átt góðu gengi að fagna í Ástralíu undanfarin ár. Hann fékk ekki að vejra titil sinn eins og frægt er orðið.


Tengdar fréttir

Nadal ætlar að nýta sér vel fjarveru Djokovic

Spánverjinn Rafael Nadal er kominn í úrslitaleikinn á Opna ástralska risamótinu í tennis og um leið einu skrefi nær því að vinna sinn 21. risatitil fyrstur allra.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×