Innlent

„Allir hundarnir í þessu máli eru hundrað þúsund prósent hrein­ræktaðir hundar“

Viktor Örn Ásgeirsson skrifar
Mæðgurnar hafa ræktað Schäferhunda undir ræktunarnafninu Gjóska.
Mæðgurnar hafa ræktað Schäferhunda undir ræktunarnafninu Gjóska. Getty Images

Mæðgum sem vísað var úr Hundaræktarfélaginu (HRFÍ) í vikunni telja illa að sér vegið og segja mannorð sitt eyðilagt. Þær eru ósáttar við stjórn félagsins og formann og gera alvarlegar athugasemdir við málsmeðferðina.

Mbl greindi fyrst frá en fréttastofa Vísis hefur yfirlýsingu frá lögmanni mæðgnanna einnig undir höndum. Í yfirlýsingunni segir að stjórn HRFÍ hafi eyðilagt mannorð mæðgnanna og lagt ræktunarstarf þeirra í rúst. 

Héraðsdómur tók deilur mægðananna og HRFÍ en vísaði málinu frá í liðinni viku. Mæðgunum var skömmu síðar vísað úr Hundaræktarfélaginu í fimmtán ár eftir úrskurð siðanefndar félagsins. Hundana hafa þær mæðgur ræktað undir merkjum ræktunarinnar Gjósku.

HRFÍ hafi eyðilagt mannorð

Mæðgurnar eiga meðal annars að hafa falsað ættbókaskráningar og með úrskurðinum voru þær sviptar ættbókarskírteini og ræktunarnafni. Þær eiga að hafa skráð vísvitandi ranga ræktunartík á eitt, tvö eða þrjú pörunarvottorð við umsókn um ættbókarskráningu gota. Það hafi haft þær afleiðingar að útgefnar ættbækur þriggja gota hafi verið efnislega rangar.

Í yfirlýsingu lögmanns, og fyrir hönd mægðnanna, er meðferð HRFÍ á málinu harðlega gagnrýnd. Þar er stjórn félagsins og formaðurinn Daníel Örn Hinriksson harðlega gagnrýnd.

„Ný stjórn HRFÍ hefur náð að eyðileggja mannorð mæðgna, borið þær röngum sökum og lagt í rúst um 30 ára mjög kostnaðarsamt áhugarmál móður sem er menntaður búfræðingur og tamningakona,“ segir meðal annars í yfirlýsingunni.

Segja formann ráðast á félaga með illindum

Formaðurinn, Daníel Örn, ræddi við fréttastofu í kvöldfréttum Stöðvar tvö í gærkvöldi og sagði málið eitt það alvarlegasta sem komið hafi upp innan félagsins. Það sé mjög alvarlegt brot gagnvart félaginu og félagsmönnum, reynist ættbókin röng. 

„Ég hef verið í félaginu í tuttugu ár og ég man ekki eftir svona alvarlegu broti,“ sagði Daníel meðal annars í samtali við fréttastofu.

Þessu eru mæðgurnar ekki sammála og fullyrða að Daníel Örn hafi vitað að hundarnir sem um ræddi hafi verið hreinræktaðir. Kæran hafi verið röng en málið haldið áfram.

„Þá liggur það fyrir að allir hundarnir í þessu máli er 100000% hreinræktaðir hundar. Að mati móður væri gaman að formaður upplýsti um sín afrek hjá félaginu önnur en ráðast á eigin félaga með ófriði og illindum,“ segir í yfirlýsingu mæðgnanna.

„Álit móður er að hún hafi mátt þola ótrúlegan hroka, yfirgang og dónaskap af hálfu jafningja sem kosnir voru til trúnaðarstarfa en meint vald hefur stigið þeim til höfuðs. Þessi málsmeðferð er þeim til ævarandi skammar og gerir þetta félag óaðlaðandi kost fyrir hundaeigendur,“ segir orðrétt í yfirlýsingunni.

Tengd skjöl


Tengdar fréttir

Man ekki eftir svo alvarlegu broti

Formaður Hundaræktarfélags Íslands segir mál mæðgna sem var vísað úr félaginu það alvarlegasta sem komið hafi upp innan félagsins. Mæðgurnar sæta fimmtán ára brottvísun, meðal annars fyrir að hafa falsað ættbókarskráningar.

Mæðgum vísað úr Hunda­ræktar­fé­laginu í fimm­tán ár

Mæðgum, sem ræktað hafa Schäferhunda um árabil, hefur verið vísað úr Hundaræktarfélagi Íslands í fimmtán ár meðal annars fyrir að hafa falsað ættbókarskráningar. Þær hafa sömuleiðis verið sviptar ættbókarskírteini og ræktunarnafni þeirra. 

Deilum innan Hunda­ræktar­fé­lagsins vísað frá héraðs­dómi

Máli tveggja ræktenda gegn Hundaræktarfélagi Íslands og fulltrúum siðanefndar félagsins var vísað frá Héraðsdómi Reykjavíkur í dag. Að mati héraðsdóms voru margar dómkrafna bæði óskýrar og vanreifaðar og ræktendunum því gert að greiða félaginu málskostnað.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×