Körfubolti

Martin og félagar gerðu góða ferð til Tenerife

Arnar Geir Halldórsson skrifar
Martin Hermannsson
Martin Hermannsson vísir/getty

Martin Hermannsson og félagar hans í Valencia unnu góðan útisigur í spænsku úrvalsdeildinni í körfubolta í kvöld.

Valencia heimsótti sterkt lið Lenovo Tenerife til eyjunnar fögru og úr varð hörkuleikur þar sem liðin skiptust á að hafa forystuna.

Fór að lokum svo að gestirnir unnu tveggja stiga sigur, 78-80.

Martin lék aðeins níu mínútur í leiknum og skoraði tvö stig auk þess að gefa þrjár stoðsendingar.

Valencia í fjórða sæti deildarinnar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×