Körfubolti

Ægir Þór og félagar töpuðu með minnsta mun

Arnar Geir Halldórsson skrifar
Ægir Þór Steinarsson lék með Stjörnunni áður en hann hélt til Spánar.
Ægir Þór Steinarsson lék með Stjörnunni áður en hann hélt til Spánar. Vísir/Bára Dröfn

Ægir Þór Steinarsson var í eldlínunni í spænska körfuboltanum í kvöld.

Ægir og félagar í Acunsa Gipuzkoa heimsóttu Caceres í spænsku B-deildinni og úr varð hörkuleikur.

Leiknum lauk með eins stigs sigri heimamanna, 68-67.

Ægir lék nítján mínútur í leiknum og nýtti þær til að skora níu stig, gefa þrjár stoðsendingar og taka fimm fráköst.

Acunsa Gipuzkoa í sjöunda sæti af átján liðum deildarinnar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×