Sport

Segir á­sakanir um kyn­ferðis­brot vera mis­skilning

Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar
Hvarf Peng Shuai eftir að hún sakaði fyrrverandi forsætisráðherra Kína um naðugun vakti mikla athygli á heimsvísu.
Hvarf Peng Shuai eftir að hún sakaði fyrrverandi forsætisráðherra Kína um naðugun vakti mikla athygli á heimsvísu. AP/Andy Wong

Peng Shuai, kínverska tenniskonan sem gufaði upp af yfirborði jarðar í nokkrar vikur síðasta haust eftir að ásaka háttsettan mann innan kínversku ríkisstjórnarinnar um kynferðisbrot, segir málið vera byggt á misskilningi.

Í nóvember á síðasta ári setti Peng Shuai inn færslu á samfélagsmiðilinn Weibo þar sem hún ásakaði Zhang Gaoli, fyrrverandi varaforseta Kína, um að hafa nauðgað sér. Færslunni var eytt stuttu síðar sem og nær öllum upplýsingum um Peng Shuai á veraldarvefnum.

Segja má að Peng Shuai hafi í kjölfarið horfið af yfirborði jarðar. Loks nokkrum vikum eftir hvarf hennar ræddu forsvarsmenn Alþjóðaólympíunefndarinnar við hana í gegnum myndbandssímtal. 

Þar sagði Peng Shuai að sér liði vel og hún væri örugg á heimili sínu í Peking. Fullyrðing sem fjölmiðlar efuðust um að væri sönn og talið var að hún væri í stofufangelsi á eigin heimili.

Nú hefur Peng Shuai skotið upp kollinum á nýjan leik en hún ræddi við fjölmiðla á mánudag vegna Vetrarólympíuleikanna sem nú fara fram í Kína. 

Þar segir hún að ásakanir hennar á hendur Zhang Gaoli hafi verið byggðar á misskilningi. Hún sagði slíkt hið sama í kínverskum fjölmiðlum í desember á síðasta ári. Einnig sagði tenniskonan að hún hefði aldrei gefið til kynna að brotið hefði verið á henni kynferðislega og að hún hefði sjálf eytt færslunni á Weibo. 

Shuai sagðist lifa eðlilegu lífi en gaf hins vegar í skyn að tennisferli hennar væri lokið. Verandi orðin 36 ára gömul og með slæm hné sem hafa þurft fleiri en eina aðgerð þá sjái hún ekki fyrir sér að snúa aftur á tennisvöllinn.

Viðtal Shuai hefur vakið mikla athygli enda ekki um hefðbundið viðtal að ræða. Til að mega ræða við tenniskonuna fyrrverandi þurfa fjölmiðlar að senda spurningar sínar fyrir fram. Þá var meðlimur ólympíunefndar Kína á staðnum og sá hann um að þýða bæði spurningar og svör.

Alþjóðatennissambandið hefur gagnrýnt forsvarsmenn Ólympíuleikanna fyrir að taka ekki betur á máli Peng Shuai. Alþjóðatennissambandið hefur hætt við allt mótahald í Kína en það sama verður ekki sagt um Ólympíuhreyfinguna.

Vetrarólympíuleikarnir fara fram í Peking í Kína. Leikarnir hófust 4. febrúar og lýkur 20. febrúar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×