Körfubolti

Tryggvi skoraði 13 í tapi

Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar
Tryggvi Hlinason var atkvæðamikill í liði Zaragoza í kvöld, en það dugði ekki til.
Tryggvi Hlinason var atkvæðamikill í liði Zaragoza í kvöld, en það dugði ekki til. Islam Yakut/Anadolu Agency via Getty Images

Tryggvi Sbær Hlinason og félagar hans í Zaragoza máttu þola 21 stigs tap er liðið heimsótti Manresa í spænsku ACB-deildinni í körfubolta í kvöld. Lokatölur urðu 94-73, en Tryggvi skoraði 13 stig fyrir gestina.

Nokkuð jafnræði var með liðunum í fyrsta leikhluta, en það breyttist þó fljótt í öðrum leikhluta. Heimamenn skoruðu fyrstu 15 stig fjórðungsins og náðu fljótt 19 stiga forskoti. Tryggvi og félagar náðu að klóra lítillega í bakkann fyrir hálfleik, en staðan var 40-25 þegar gengið var til búningsherbergja.

Meira jafnræði myndaðist aftur með liðunum eftir hálfleikinn og heimamenn héldu forskoti sínu. Þeir náðu svo mest 28 stiga forskoti í lokaleikhlutanum og unnu að lokum öruggan 21 stigs sigur, 94-73.

Eins og áður segir skoraði Tryggvi 13 stig fyrir Zaragoza í kvöld, en hann tók einnig sjö fráköst og gaf eina stoðsendingu. Tryggvi og félagar sitja í tólfta sæti deildarinnar með 16 stig eftir 21 leik, tólf stigum á eftir Manresa sem situr í þriðja sæti.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×