Fótbolti

Sigurður Egill með tvö mörk í sigri Vals á Gróttu

Atli Arason skrifar
Sigurður Egill skoraði tvö mörk í dag.
Sigurður Egill skoraði tvö mörk í dag. vísir/bára

Valur vann sannfærandi 3-0 sigur á Gróttu í A-deild Lengjubikars karla í dag. Leikið var í riðli 1.

Sigurður Egill Lárusson sá til þess að Valsmenn voru 1-0 yfir í hálfleik. Í síðari hálfleik tvöfaldaði Tryggvi Hrafn Haraldsson forystu Vals áður en Sigurður bætti sínu öðru marki við. Lokatölur 3-0 fyrir Val.

Valur hefur nú unnið báða leiki sína í Lengjubikarnum gegn Þrótti Vogum og nú Gróttu. Samanlögð markatala Vals manna er 8-0 og piltarnir frá Hlíðarenda líta vel út fyrir komandi tímabil í efstu deild. Næsti leikur Vals er gegn ÍBV á laugardaginn en Grótta leikur við Þrótt frá Vogum sama dag.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×