Körfubolti

Sverrir Þór tekur við Grinda­vík

Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar
Sverrir Þór Sverrisson er tekinn við Grindavík.
Sverrir Þór Sverrisson er tekinn við Grindavík. Vísir/Bára

Sverrir Þór Sverrisson hefur verið ráðinn þjálfari liðs Grindavíkur í Subway-deild karla í körfubolta. Grindvíkingar hafa verið án þjálfara síðan Daníel Guðni Guðmundsson var látinn taka poka sinn á dögunum.

Fyrr í vikunni ákvað Grindavík að láta Daníel Guðna fara en liðið er sem stendur í 6. sæti Subway-deildar karla með 19 stig að loknum 17 leikjum. Níu hafa unnist en átta hafa tapast. Nú hefur verið staðfest að gamla brýnið Sverrir Þór Sverrisson muni taka við liðinu.

Hinn 46 ára Sverrir Þór er margreyndur þjálfari sem þekkir vel til á Suðurnesjunum. Hann hefur þó ekki þjálfað síðan hann stýrði karlaliði Keflavíkur tímabilið 2018-2019. Hann hefur nú ákveðið að snúa aftur í þjálfun og mun stýra liði Grindavíkur út leiktíðina.

Er þetta í annað sinn sem hann mun stýra karlaliði Grindavíkur en hann þjálfaði liðið frá 2012 til 2015. Varð liðið meistari undir hans stjórn árið 2013.

„Ég var ekki á leiðinni í þjálfun en þegar þetta tækifæri kom upp þá varð ég mjög spenntur. Eftir að hafa hugsað þetta vel og rætt við Jóhann Þór þá ákvað ég að kýla á þetta. Ég á mjög góðar minningar frá tíma mínum með Grindavík og hugsa að ég hefði ekki tekið við neinu öðru liði á þessum tímapunkti. Þetta tækifæri hreyfði við mér og er mjög spenntur að hefjast handa og hitta leikmannahópinn,“ segir Sverrir Þór í tilkynningu sem Grindavík sendi frá sér í dag.

Fyrsti leikur Grindvíkinga undir stjórn Sverris Þórs verður eftir slétta viku, föstudaginn 4. mars, er Vestri mætir til Grindavíkur.


Subway-deildirnar í körfubolta eru á Stöð 2 Sport en upplýsingar um útsendingar má finna hér. Subway-deildin er hluti af Stöð 2 Sport Ísland sem kostar 3.990 krónur á mánuði.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×