Körfubolti

Martin stiga­hæstur í naumum og mikil­vægum sigri Valencia

Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar
Martin átti frábæran leik í kvöld.
Martin átti frábæran leik í kvöld. Borja B. Hojas/Getty Images

Martin Hermannsson átti frábæran leik í liði Valencia er liðið vann nauman fimm stiga sigur á Manresa í ACB-deildinni í körfubolta í kvöld, lokatölur 90-85.

Leikur kvöldsins var einkar jafn frá upphafi til enda. Heimamenn örlítið sterkari aðilinn en þeim tókst aldrei að slíta sig almennilega frá gestunum fyrr en skammt var til leiksloka. Munurinn var fjögur stig í hálfleik en í þeim síðari var munurinn lengi vel aðeins eitt til tvö stig.

Á endanum tókst Valencia að sigla sigrinum heim þökk sé frábærri frammistöðu íslenska landsliðsmannsins Martins Hermannssonar.

Martin var stigahæstur í liði Valencia með 19 stig en hann gaf einnig þrjár stoðsendingar og tók tvö fráköst.

Sigurinn þýðir að Valencai er nú með 28 stig í 5. sæti deildarinnar. Manresa er í 3. sæti með tveimur stigum meira eftir að hafa leikið leik meira en Valencia.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×