Lífið

Kominn á nýjan stað í lífinu og upplifði létti eftir gjaldþrotið

Sylvía Rut Sigfúsdóttir skrifar
Jói Fel ákvað strax að halda áfram í stað þess að horfa til baka, eftir að reksturinn fór í þrot.
Jói Fel ákvað strax að halda áfram í stað þess að horfa til baka, eftir að reksturinn fór í þrot. Ísland í dag

Jói Fel sagði skilið við veitingageirann fyrir rúmu ári þegar bakaríin hans fóru í þrot. Hann segir það hafa verið erfiða reynslu að ganga í gegnum en að hann hafi samt verið staðráðinn í að rísa fljótt aftur upp.

Nú er hann mættur í eldhúsið á ný og hefur opnað veitingastaðinn Felino við Engjateig. Ísland í dag kíkti á Jóa Fel í síðustu viku til að taka púlsinn á þessum mikla ævintýramanni sem hefur sannarlega upplifað hæðir og lægðir á löngum ferli sínum sem veitingamaður. Það reyndist honum mikið áfall þegar fyrirtækið fór í þrot.

„Það gekk rosalega vel í mörg ár hjá okkur. Það gekk vel fram á síðasta dag með kúnnunum mínum. En því miður voru skuldir orðnar of háar, launin of há, kostnaðurinn of hár. Ég fann það síðustu mánuðina að þetta var að líða undir lok. Ég fann þá að mér leið illa og ég var að berjast.“

Jói upplifði því létti daginn sem fyrirtækið hætti rekstri og bakaríunum var lokað. Hann ákvað strax að horfa fram á við en ekki til baka.

„Tilfinningin þegar þetta lokaði var náttúrulega ekki góð, en ég fann nokkrum dögum síðar að ég var kominn á nýjan stað í lífinu“

Viðtalið má sjá í spilaranum hér fyrir neðan. Taka skal fram að viðtalið var tekið upp áður en Jói lenti í bráðaaðgerð á Landspítalanum, sem fjallað var um hér á Vísi


Tengdar fréttir

Fór með hraði á Land­­spítalann og beint í hjarta­­þræðingu

Jói Fel bakari, kokkur og athafnamaður ber sig vel eftir að hafa farið með skyndi í hjartaþræðingu. Hann segist hafa fengið svima, byrjað að svitna, verk í handlegg og sem leiddi upp í brjóst. Blessunarlega hafi hann beint farið á bráðamóttökuna.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×