Innlent

Fagnar tillögum starfshópsins: „Eitt slys er slysi of mikið“

Fanndís Birna Logadóttir skrifar
Sæunn Ósk Unnsteinsdóttir, framkvæmdastjóri Hopp Reykjavík.
Sæunn Ósk Unnsteinsdóttir, framkvæmdastjóri Hopp Reykjavík. Vísir/Einar

Ölvun á smáfaratækjum verður meðal annars gerð refsiverð ef tillögur starfshóps á vegum innviðaráðuneytisins gengur eftir. Framkvæmdastjóri Hopp fagnar niðurstöðum hópsins en telur mikilvægt að reglurnar verði ekki of harðar.

Innviðaráðherra skipaði starfshópinn til að gera tillögur að úrbótum þegar kemur að smáfaratækjum á borð við rafhlaupahjól. Vinsældir þeirra halda áfram að aukast og mun hjólunum sjálfum fjölga nokkuð á næstunni. Gangi tillögur starfshópsins eftir þurfa ökumenn þeirra þó að fylgja ákveðnum reglum .

Starfshópurinn lagði alls fram sex tillögur en í skýrslunni er vísað til þess að slys einstaklinga á rafhlaupahjólum væru að aukast, einna helst seint um kvöld eða á nóttinni um helgar.

„Eitt slys er slysi of mikið. Það að fólk skuli stíga upp á rafskútu, algjörlega ófært um að valda henni, er náttúrulega áhyggjuefni fyrir okkur því við viljum að notendur okkar séu öryggir,“ segir Sæunn Ósk Unnsteinsdóttir, framkvæmdastjóri Hopp Reykjavík.

Fólk þurfi að hugsa sig tvisvar um 

Er það meðal annars lagt til að það verði gert refsivert að aka smáfaratæki undir áhrifum áfengis. „Við erum ekki mikið fyrir boð og bönn en ef þetta þarf til að fá fólk til að hugsa sig tvisvar um áður en það fer út og stígur á rafskútu haugölvað, þá að sjálfsögðu styðjum við það,“ segir hún.

Hún bendir þó á að aðeins átta prósent ferða á vegum Hopp séu á nóttunni og er minnihluti þeirra undir áhrifum áfengis. Því muni það líklega ekki hafa mikil áhrif að banna ölvuðum einstaklingum að nota hjólin.

Um þúsund hjól eru í rafhlaupahjólaflota Hopp í dag og fer þeim fjölgandi. Vísir/Einar

„Þessir örfáu einstaklingar sem fara á rafskútu undir miklum áhrifum, það er verið að tala um þá í staðinn fyrir alla þá sem nota þetta sem samgöngutæki á nóttinni,“ segir Sæunn.

„Ég held að umræðan hafi verið röng, það er búið að vera leggja áherslu á þessa örfáu í staðinn fyrir heildina sem notar þetta bara til að fara fram og til baka. Ég held ekki að við munum missa nokkur viðskipti,“ segir hún enn fremur.

Starfshópurinn lagði einnig fram tillögur sem snúa að aldurstakmörkum og hámarkshraða en Sæunn fagnar sérstaklega tillögu hópsins um að það verði leyfilegt að aka á hjólunum á götum þar sem 30 kílómetra hámarkshraði er.

„Það á bara engan veginn saman að einhver sé á 25 kílómetra hraða og er á gangstétt þannig við fögnum því mjög og vonum að það verði að veruleika,“ segir Sæunn.

Reglur sem þurfa að vera í stöðugri þróun

Aðspurð um hvort það sé eitthvað sem þau vildu hafa séð í tillögunum segir Sæunn það einna helst vera pláss. 

„Það er búið að viðurkenna rafskútuna, þetta er mikilvægt, við viljum hafa þetta í borgarlandinu, en okkur vantar pláss,“ segir Sæunn og vísar til að mynda til sambærilegra stæða og eru fyrir reiðhjól. „Þannig það hefði í rauninni verið svona punktur sjö, að gefa rafskútunni meira pláss.“

Almennt séð sé þó mikilvægt að reglurnar séu ekki of harðar þar sem nýsköpun verður að öllum líkindum mjög hröð.

Þannig þetta er eitthvað sem þarf að vera í stöðugri þróun samhliða þróun rafhlaupahjóla?

„Allan daginn, og þetta þarf að vera í virku samtali. Það var svo frábært með þennan hóp að þau leituðu til okkar, fengu ábendingar frá okkur og tóku þær með inn í umræðuna, og það er það sem að er svo mikilvægt í þessu, að þetta sé bara samtal á milli okkar allra.“


Tengdar fréttir

Átta­tíu fleiri al­var­leg raf­hlaupa­hjóla­slys í ár en í fyrra

Sjö hafa látið lífið í umferðarslysum á þessu ári. Fjórir fórust í janúar og febrúar í þremur banaslysum en síðan liðu rúmir tvö hundruð dagar þar til næsta banaslys varð í byrjun nóvember. Um er að ræða lengsta tíma frá upphafi skráninga á slysum hér á landi sem liðið hefur á milli banaslysa í umferðinni. Síðan þessi mánuður hófst hafa þrír farist í umferðarslysum.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×