Fótbolti

Skaginn bætir við sig miðverði

Hjörvar Ólafsson skrifar
Jón Þór Hauksson með nýjasta leikmanni Skagamanna. 
Jón Þór Hauksson með nýjasta leikmanni Skagamanna.  Mynd/ÍA

Karlalið ÍA í fótbolta hefur fengið til liðs við sig Tobias Stagaard á láni út yfirstandandi keppnitímabil frá danska félaginu AC Horsens. 

Um er að ræða tvítugan varnarmann en Skagamenn hafa verið í meiðslavandræðum í hjarta varnarinnar í síðustu leikjum. 

Aron Bjarki Jósepsson, Oliver Stefánsson og Wout Droste fóru meiddir af velli í tapi Skagaliðsins gegn Leikni í síðustu umferð deildarinnar. 

Þá hefur Alex Davey einnig verið að glíma við meiðsli. 

ÍA situr eins og sakir standa í 10. sæti deildarinnar með átta stig eftir 11 leiki og er einu stigi fyrir ofan Leikni sem er í næstneðsta sæti. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×