Fótbolti

Mis­munandi á­herslur daginn eftir leik: Mynda­syrpa

Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar
Glódís Perla Viggósdóttir nýtur sín ekki beint á hjólinu virðist vera á meðan guð einn veit hvað Hallbera Guðný Gísladóttir er að hugsa um er lóðin fara á loft.
Glódís Perla Viggósdóttir nýtur sín ekki beint á hjólinu virðist vera á meðan guð einn veit hvað Hallbera Guðný Gísladóttir er að hugsa um er lóðin fara á loft. Vísir/Vilhelm

Það er mismunandi hvað leikmenn gera daginn eftir leik. Á æfingu íslenska landsliðsins í dag má sjá þær sem spiluðu leik Íslands og Ítalíu í gær taka því rólega með léttu skokki og smá lyftingum. Þær sem minna eða ekkert spiluðu taka hins vegar alvöru æfingu.

Vilhelm Gunnarsson, ljósmyndari Vísis, kíkti við á æfingu hjá Stelpunum okkar í Crewe á Englandi. Liðið er að sleikja sárin eftir 1-1 jafntefli við Ítalíu í gær sem gerir líkurnar á að komast áfram í 8-liða úrslit frekar litlar en íslensk landslið eru oftar en ekki best þegar þau eru með bakið upp við vegg og hafa engu að tapa.

Myndir af æfingu liðsins í dag má sjá hér að neðan.

Sara Björk Gunnarsdóttir djúpt hugsi.Vísir/Vilhelm
Vísir/Vilhelm
Elísa Viðarsdóttir, Cecilía Rán Rúnarsdóttir og Karólína Lea Vilhjálmsdóttir skokka um svæðið.Vísir/Vilhelm
Glódís Perla og Karólína Lea.Vísir/Vilhelm
Ekki allar jafn spenntar fyrir komandi styrktaræfingu hjá Dúnu.Vísir/Vilhelm
Mikilvægt að telja boltana fyrir æfingu.Vísir/Vilhelm
Talningin klikkaði.Vísir/Vilhelm
Afmælisbarnið Sif Atladóttir skemmtir sér alltaf vel.Vísir/Vilhelm
Mikið fjör, mikið gaman.Vísir/Vilhelm
Sif Atladóttir og Auður Scheving sáu eitthvað spennandi á meðan Áslaug Munda skilur hvorki upp né niður.Vísir/Vilhelm
Sveindís Jane Jónsdóttir og Sara Björk Gunnarsdóttir.Vísir/Vilhelm
Aðeins verið að æfa boltatæknina.Vísir/Vilhelm
Þorsteinn Halldórsson, landsliðsþjálfari.Vísir/Vilhelm
Og aftur.Vísir/Vilhelm
Ásmundur Haraldsson, aðstoðarþjálfari.Vísir/Vilhelm


Tengdar fréttir

Einkunnir Íslands: Sandra maður leiksins í markinu

Ísland gerði 1-1 jafntefli við Ítalíu í öðrum leik liðsins á Evrópumótinu á Englandi. Hér er hægt að sjá einkunnir íslensku leikmannanna í leiknum þar sem Sandra Sigurðardóttir í markinu var valin maður leiksins.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×