Magnaður lokasprettur Hollands tryggði sæti í 8-liða úrslitum

Arnar Geir Halldórsson skrifar
Góð innkoma af bekknum!
Góð innkoma af bekknum! vísir/Getty

Evrópumeistarar Hollands verða með í 8-liða úrslitum EM í Englandi eftir 4-1 sigur á Sviss í lokaumferð C-riðils.

Ljóst var fyrir leik að Hollendingum myndi nægja jafntefli til að komast áfram úr riðlinum og fyrri hálfleikur var markalaus.

Snemma í síðari hálfleik náðu þær hollensku forystunni þegar Ana-Maria Crnogorcevic setti boltann í eigið net. Geraldine Reuteler var fljót að jafna metin fyrir Sviss því hún skoraði á 53.mínútu.

Leikurinn var hnífjafn og spennandi þangað til á lokakaflanum en þá virtist sem öll orka Svisskvenna væri á þrotum og það nýttu þær hollensku sér í botn.

Romee Leuchter kom inn af varamannabekknum hjá Hollandi og náði forystunni aftur þegar hún skoraði á 84.mínútu. Í uppbótartíma venjulegs leiktíma bætti hún öðru marki sínu við auk þess sem Victoria Pelova skoraði einnig og lokatölur því 4-1 fyrir Holland.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira