Fótbolti

„Við erum í bílstjórasætinu“

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Íslensku landsliðsstelpurnar á æfingu í Crewe þar sem þær undirbúa sig nú fyrir leikinn mikilvæga á móti Frökkum.
Íslensku landsliðsstelpurnar á æfingu í Crewe þar sem þær undirbúa sig nú fyrir leikinn mikilvæga á móti Frökkum. Vísir/Vilhelm

Þorsteinn Halldórsson er enn taplaus sem þjálfari á stórmótum eftir jafntefli í tveimur fyrstu leikjum Íslands á Evrópumótinu í Englandi.

Þorsteinn fór aðeins yfir leikinn á móti Ítalíu fyrir æfingu liðsins daginn eftir.

„Ég er aðeins búinn að skoða þetta og fara yfir þetta. Það er stutt á milli í þessu. Auðvitað var þetta erfiður leikur og allt það en við kláruðum hann af krafti og hefðum getað unnið þennan leik,“ sagði Þorsteinn Halldórsson en var hann vaknaður eldsnemma til að fara yfir málin?

„Nei það var aðallega gærkvöldið. Maður vaknaði svo sem ágætlega snemma en ég fór aðallega yfir þetta í gærkvöldi,“ sagði Þorsteinn. Hvað þarf liðið að gera betur í næsta leik?

„Við þurfum að halda aðeins betur í boltann og þora aðeins betur að vera með boltann. Við vorum stundum of fljót að fara í aðgerðir,“ sagði Þorsteinn.

Þorsteinn Halldórsson.Vísir/Vilhelm

Ísland er með tvö stig í riðlinum og situr í öðru sæti en það sæti mun gefa þátttökurétt í átta liða úrslitunum verði stelpurnar okkar enn þar eftir lokaumferðina á mánudagskvöldið.

„Við höfum lagt þetta upp allan tímann þannig að við ætlum að stjórna aðstæðum sjálf. Við erum að sjálfsögðu enn þá í þeirri stöðu. Það er það sem við höfum lagt upp allan tímann að við ætlum að vera inn í þessu. Við ætlum að vinna leik og vera með stjórn á því hvort við komumst áfram eða ekki. Staðan er þannig núna að við erum í bílstjórasætinu,“ sagði Þorsteinn.

Frakkarnir eru komnir áfram en mun það hjálpa okkar konum í þessum mikilvæga leik að Frakkar hafa í raun engu að keppa.

„Ég ætla að vona það að það lækki spennustigið og viljann til að fara af krafti inn í leikinn á móti okkur. Við þurfum samt bara að fókusa á okkur og horfa í það hvernig við ætlum að tækla þetta og hvað við ætlum að gera,“ sagði Þorsteinn.

Ísland mætir Frakklandi í lokaleik sínum í D-riðli á mánudagskvöldið.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×