Fótbolti

Ætla ekki að láta stelpurnar vita af stöðunni í hinum leiknum

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Sif Atladóttir og Auður Sveinbjörnsdóttir Scheving bregða á leik en við hlið þeirra er Áslaug Munda Gunnlaugsdóttir. Úrslitin úr leik Ítalíu og Belgíu gætu breytt öllu fyrir okkar konur.
Sif Atladóttir og Auður Sveinbjörnsdóttir Scheving bregða á leik en við hlið þeirra er Áslaug Munda Gunnlaugsdóttir. Úrslitin úr leik Ítalíu og Belgíu gætu breytt öllu fyrir okkar konur. Vísir/Vilhelm

Stelpurnar okkar eiga enn möguleika á að komast í átta liða úrslit Evrópumótsins í Englandi þegar aðeins einn leikur er eftir í riðlinum.

Íslenska liðið situr í öðru sæti og tvö efstu sætin skila sæti í útsláttarkeppninni. Vandamálið er kannski að mótherjinn er gríðarlega sterkt lið Frakka.

Íslenska liðið getur tryggt sér sæti með sigri en jafntefli gæti einnig komið liðinu áfram. Þá gæti liðið farið áfram á tapi en í tveimur síðari tilfellunum þarf liðið að fara að treysta á úrslitin úr leik Ítalíu og Belgíu sem fer fram á sama tíma.

Það eru því miklar líkur á því að úrslitin úr leiknum í Manchester hafi mikil áhrif á lokaniðurstöðuna hjá íslensku stelpunum sem spila á sama tíma í Rotherham.

„Við munum að sjálfsögðu fylgjast með honum þótt við séum ekki beint að láta leikmenn vita um stöðuna í honum. Við erum samt ekki búin að fara yfir það nákvæmlega hvernig við munum gera þetta. Við höfum verið inn í Ítalíuleiknum og fókuseruð á það,“ sagði Þorsteinn Halldórsson, landsliðsþjálfari.

„Við höfum ekkert verið að horfa á skipuleg um hvernig við nálgumst Frakkaleikinn. Við verðum að fara yfir það í dag og á morgun. Það er einhver hlutir sem við tökum á þegar þar að kemur,“ sagði Þorsteinn fyrir æfingu liðsins í gær.

Það gæti verið smá útreikningur að finna út lokastöðu liðanna eftir leikina á mánudaginn.

„Já þetta getur orðið það. Þetta verður mjög spennandi og vonandi endum við bara á réttum stað. Markmiðið okkar í dag er að eiga góðan leik á móti Frakklandi og stefna á að ná að vinna leikinn,“ sagði Þorsteinn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×