Fótbolti

Hausinn þarf að vera í lagi líka

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Dagný Brynjarsdóttir ræðir hér við fjölmiðla á íslenska hótelinu í gær.
Dagný Brynjarsdóttir ræðir hér við fjölmiðla á íslenska hótelinu í gær. Vísir/Vilhelm

Dagný Brynjarsdóttir og félagar í íslenska landsliðinu tóku fagnandi möguleikanum á því að hitta sitt fólk í gær. Íslensku stelpurnar sóttu sér þar vonandi í þá andlegu orku sem þaf til að gera eitthvað í lokaleiknum mikilvæga á móti Frökkum.

Íslenska liðið hefur gert jafntefli í tveimur fyrstu leikjunum sínum en sigur í öðrum hvorum þeirra hefði breytt miklu um stöðu liðsins.

„Auðvitað vorum við svekktar því við ætluðum okkur sigur í alla vega öðrum hvorum leiknum. Við verðum líka að virða stigið og þetta er enn þá í okkar höndum. Til að vera sem best undirbúnar fyrir Frakkaleikinn þá höfum við hugsað vel um okkur og endurheimt vel. ,“ sagði Dagný Brynjarsdóttir.

Hún var ánægð með afslappaðan laugardag. „Við fengum frídag í dag. Það var ótrúlega þægilegt. Við gátum aðeins hitt fjölskyldu og nánustu ættingja,“ sagði Dagný.

„Ég ákvað að vera hérna eftir á hótelinu og ég fékk soninn minn og manninn minn í heimsókn. Það var virkilega kærkomið og þetta var fyrsti heili dagurinn sem ég fékk að eyða með þeim núna í þrjár vikur. Ég ákvað að vera ekki að eyða honum í rútu á leið til Manchester og eyða frekar þessa tvo auka klukkutíma á hótelinu með þeim,“ sagði Dagný.

„Þetta var bara æði og ótrúlega kærkomið. Það skiptir máli að við náum okkur vel líkamlega en svo þarf hausinn að vera í lagi líka. Þetta er búinn að vera langur undirbúningur og langt mót þannig að það er mikilvægt að hitta börnin. Ég ákvað að fá þá frekar hingað í rólegheit frekar en að hitta stórfjölskylduna í Manchester,“ sagði Dagný.

Frakkarnir verða mjög erfiðar en hausinn er á góðum stað samkvæmt mati Dagnýju.

„Bara mjög góður. Við tökum fund í kvöld (gærkvöld) um Frakkaleikinn og þá fáum við að vita meira um þeirra leik. Síðustu tveir leikir hjá þeim hafa verið ótrúlega ólíkir eins og á móti Belgíu og Ítalíu. Við fáum að sjá þeirra veikleika og styrkleika. Svo tökum við bara æfingu á morgun (í dag) og þá ættum við að vera klárar,“ sagði Dagný.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×