Fótbolti

Dagný var hetjan þegar stelpurnar komust síðast áfram í átta liða úrslitin

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Þegar Dagný Brynjarsdóttir tryggði Íslandi sæti í átta liða úrslitunum á EM 2013 þá var Sveindís Jane Jónsdóttir bara nýorðin tólf ára.
Þegar Dagný Brynjarsdóttir tryggði Íslandi sæti í átta liða úrslitunum á EM 2013 þá var Sveindís Jane Jónsdóttir bara nýorðin tólf ára. Vísir/Vilhelm

Í annað skiptið í sögunni er íslenska kvennalandsliðið enn með á fullu baráttunni um sæti í átta liða úrslitum á Evrópumóti þegar aðeins einn leikur er eftir.

Í keppnunum 2009 og 2017 tapað íslenska liðið öllum leikjum sínum en fyrir níu árum síðan þá áttu þær enn ágætis möguleika fyrir lokaumferð riðilsins.

Íslenska liðið mætti þá Hollandi í lokaumferðinni eftir að íslensku stelpurnar höfðu náð í eitt stig út úr tveimur fyrstu leikjunum á móti Noregi og Þýskalandi.

Noregur og Þýskaland voru þá bæði með fjögur stig en hollenska liðið var með jafnmörg stig og það íslenska.

Á þessum tíma voru það ekki bara tvö efstu liðin sem komust upp úr riðlinum heldur einnig tvö af þremur sem enduðu í þriðja sæti.

Dagný Brynjarsdóttir tryggði íslenska liðinu 1-0 sigur í leiknum með skallamarki eftir sendingu frá Hallberu Guðnýju Gísladóttur og íslensku stelpurnar sendu þær hollensku heim.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×