Fótbolti

„Það er vegna þess að hún er alltaf litla stelpan mín“

Sindri Sverrisson skrifar
Hallbera Jóhannesdóttir og Gísli Gíslason ræddu við Svövu Kristínu Gretarsdóttur í Manchester í gær.
Hallbera Jóhannesdóttir og Gísli Gíslason ræddu við Svövu Kristínu Gretarsdóttur í Manchester í gær. VÍSIR/VILHELM

Svava Kristín Gretarsdóttir ræddi við foreldra Hallberu Guðnýjar Gísladóttur og Elísu Viðarsdóttur í Manchester í gær, á meðan beðið er með óþreyju eftir leik Íslands og Frakklands á EM sem fram fer í Rotherham í kvöld.

Hallbera og Gísli, foreldrar Hallberu, hafa verið á meðal stuðningsmanna íslenska landsliðsins á EM og notið þess að fylgjast með spennuleikjunum við Belgíu og Ítalíu, sem báðir enduðu 1-1.

„Við fylgjum stelpunum hvert sem er. Þessar landsliðsstelpur, þessi hópur, þetta eru svo klárar og flottar stelpur að það er ekki annað hægt en að fylgja þeim bara út í hið óendanlega,“ sagði Gísli sem er fyrrverandi varaformaður KSÍ.

Þau Hallbera og Gísli munu ferðast á leikinn í Rotherham í dag í rútu, með stórum aðstandendahópum félaga Hallberu úr vörninni, þeirra Guðrúnar Arnardóttur og Glódísar Perlu Viggósdóttur

„Það verður sungið og trallað. Það er þannig fólk um borð að þetta klikkar ekki,“ sagði Gísli en nýjasta þáttinn af EM í dag má sjá hér að neðan.

Klippa: EM í dag - 17.júlí

Hallberu hefur verið lýst af liðsfélögum sem miklum húmorista og foreldrarnir segja hana alltaf hafa verið mikinn gleðigjafa:

„Hún var alveg ógeðslega skemmtilegur krakki. Í minningunni þá var hún aldrei óþekk en svolítið uppátækjasöm, en hún var alltaf skemmtileg,“ sagði Hallbera.

Hallbera Guðný Gísladóttir og foreldrar hennar hittust í Manchester í gær.VÍSIR/VILHELM

Hallbera yngri verður 36 ára í september en þrátt fyrir að vera ein sú elsta í hópnum hefur hún verið öryggið uppmálað í vörn íslenska liðsins á mótinu.

„Það er vegna þess að hún er alltaf litla stelpan mín,“ sagði Gísli léttur. „Hún er alltaf ung í anda og fer vel með sig, og sýnir það á vellinum og í öllu sem hún tekur sér fyrir hendur utan vallar líka,“ bætti hann við áður en talið barst að vatnsblöðruárásum feðginanna heima á Akranesi í gegnum árin.

Þáttinn má sjá í heild sinni hér að ofan en þar ræðir Svava Kristín einnig við fjölskyldu Elísu Viðarsdóttur sem mætt er í fjórða sinn á Evrópumót.

Leikur Íslands og Frakklands á EM hefst klukkan 19 í kvöld að íslenskum tíma og verður ítarlega fjallað um hann hér á Vísi í allan dag.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×