Fótbolti

Mikil spenna á ís­lenska stuðnings­manna­svæðinu fyrir leik dagsins

Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar
EM Englandi í knattspyrnu kvenna, Fan zone í Rotherham fyrir leik gegn Frakklandi
EM Englandi í knattspyrnu kvenna, Fan zone í Rotherham fyrir leik gegn Frakklandi Vísir/Vilhelm

Það var steikjandi hiti á stuðningsmannasvæðinu í Rotherham þar sem íslensku stuðningsmennirnir komu saman í aðdraganda leiksins mikilvæga á móti Frökkum. Svava Kristín Grétarsdóttir tók út stemninguna.

Íslendingarnir voru að sjálfsögðu mættir í sínum bláu peysum en hitinn setti mikinn svip á allt enda erfitt fyrir alla að vera lengi út í sólinni. Dóra Júlía náði upp stemmningu og fékk fólkið út að dansa í 37 stiga hita.

Hér að neðan má svo sjá Svövu Kristínu ræða við gesti og gangandi í hitanum í Rotherham.

Klippa: Fanzone fyrir leikinn gegn Frakklandi



Fleiri fréttir

Sjá meira


×