Fótbolti

Englendingar og Svíar enn líklegastir til sigurs en Þjóðverjar banka á dyrnar

Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar
Þær ensku teljast líklegastar til sigurs á EM á heimavelli.
Þær ensku teljast líklegastar til sigurs á EM á heimavelli. Harriet Lander/Getty Images

Nú þegar riðlakeppninni á Evrópumóti kvenna í knattspyrnu er lokið og liðin safna kröftum fyrir átta liða úrslitin sem hefjast á morgun gefst tími til að kíkja stuttlega yfir það hvaða þjóðir teljast líklegastar til sigurs á mótinu.

Eins og flestir lesendur ættu að vita féll íslenska liðið úr leik eftir hetjulega baráttu gegn Frökkum í gær. Íslensku stelpurnar töpuðu ekki leik á mótinu, en þrjú jafntefli nægðu ekki til og því er liðið á heimleið.

Íslenska liðið var eitt sex liða sem tapaði ekki einum einasta leik í riðlakeppninni, en er fyrsta liðið í sögu EM til að falla úr leik án þess að tapa.

Engar líkur á því að sigurstranglegustu þjóðirnar mætist í úrslitum

Tölfræðiveitan Gracenote hefur hingað til tekið saman sigurmöguleika hverrar þjóðar fyrir sig á EM, og nú þegar komið er að átta liða úrslitum er engin breyting þar á.

Frá því að mótið hófst hafa heimakonur í enska landsliðinu verið taldar sigurstranglegastar á EM. Nú þegar komið er í átta liða úrslitin reiknast sérfræðingum Gracenote svo til að þær ensku eigi 22 prósent líkur á því að fagna sigri á mótinu.

Næstar þar á eftir eru stelpurnar í sænska landsliðinu, en sigurlíkur þeirra eru um 21 prósent. Þó eru nákvæmlega engar líkur á því að við munum sjá Englendinga og Svía mætast í úrslitaleik mótsins þar sem þjóðirnar munu mætast í undanúrslitum komist þær áfram úr átta liða úrslitum.

Þjóðverjar stökkva upp listann

Þá vekur athygli að Þjóðverjar sitja nú í þriðja sæti listans yfir þær þjóðir sem teljast líklegastar til að vinna mótið. Þær þýsku lyfta sér þar með upp fyrir bæði Frakka og ríkjandi Evrópumeistara Hollendinga.

Sigurlíkur Þjóðverja er nú 20 prósent, en ástæða þess að liðið lyftir sér upp fyrir Frakka og Hollendinga er sú að síðarnefndu þjóðirnar tvær mætast í átta liða úrslitum.

Þá má einnig nefna að Belgar, sem komust í átta liða úrslit á kostnað Íslendinga, eiga minnsta sigurmöguleika, ásamt Austurríki. Sigurlíkur Belgíu og Austurríkis eru taldar vera um eitt prósent.

Sigurlíkur þjóðanna

England - 22%

Svíþjóð - 21%

Þýskaland - 20%

Frakkland - 16%

Holland - 12%

Spánn - 7%

Belgía - 1%

Austurríki - 1%




Fleiri fréttir

Sjá meira


×