Innlent

„Maður myndi alveg þiggja fleiri svona helgar“

Fanndís Birna Logadóttir skrifar
Jóhann Karl Þórisson, aðstoðaryfirlögregluþjónn hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu.
Jóhann Karl Þórisson, aðstoðaryfirlögregluþjónn hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu. Stöð 2

Verslunarmannahelgin var með rólegra móti þetta árið þó hátíðarhöld hafi verið víða á landinu og mikil stemning eftir faraldur. Færri líkamsárásir komu á borð lögreglu en oft áður en tilkynnt hefur verið um tvö kynferðisbrot í Vestmannaeyjum.

Verslunarmannahelgin er stærsta ferðahelgi ársins og nóg að gera víðs vegar á landinu en þó voru margir sem héldu sig í Reykjavík þetta árið.

„Heilt yfir þá bara gekk þetta mjög vel, þessi helgi,“ segir Jóhann Karl Þórisson, aðstoðaryfirlögregluþjónn hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu, um verkefni helgarinnar en að hans sögn var helgin rólegri en oft áður. „Maður myndi alveg þiggja fleiri svona helgar.“

Þó nokkur mál komu þó á borð lögreglu og voru þau að mestu tengd skemmtanahaldi auk þess sem eitthvað var um ölvunarakstur. Nítján líkamsárásir voru tilkynntar í heildina, þar af tvær alvarlegar, en Jóhann segir það ekki mikið.

„Ég held að þjóðin hafi bara einhvern veginn breyst í Covid, fólk er farið fyrr út og fyrr heim og við sjáum það bara á tölunum, það er minna um líkamsárásir,“ segir hann.

Gekk vel í Eyjum þó eitt ofbeldisbrot sé einu of mikið

Þó það hafi verið nóg að gera í miðbænum þessa helgina þá voru þó ívið færri en vanalega en margir sóttu ýmsar hátíðir víðs vegar á landinu. Þannig var til að mynda mjög fjölmennt á Þjóðhátíð í Vestmannaeyjum.

„Það var gríðarlegur fjöldi, sérstaklega þegar á leið og mest á sunnudagskvöldið, og svona miðað við mannfjölda og hátíðina í heild sinni þá gekk þetta bara nokkuð vel,“ segir Grímur Hergeirsson, lögreglustjóri í Vestmannaeyjum og settur lögreglustjóri á Suðurlandi.

Sömu sögu megi segja af Suðurlandinu þar sem margir voru á tjaldsvæðum og umferð mikil. Tilfinning lögreglu sé sú að minni erill hafi verið þessa helgina. 

Í Vestmannaeyjum voru átta líkamsárásarmál skráð hjá lögreglu, aðeins færri en á fyrri árum. Þá var tilkynnt um tvö kynferðisbrot í gær og eru þau mál til meðferðar. Á Suðurlandi hefur sömuleiðis verið tilkynnt um eitt kynferðisbrot eftir helgina. Of snemmt er að bera þann fjölda saman við fyrri ár að sögn Gríms.

„Það er auðvitað þekkt varðandi kynferðisbrotin að þau eru gjarnan tilkynnt eftir á, þannig það er í sjálfu sér ekki hægt að skoða niðurstöðuna fyrr en einhver tími er liðinn,“ segir Grímur.

Eitt ofbeldisbrot sé þó einu of mikið.

„Það er alltaf markmiðið að þetta verði allt eins gott og mögulegt er, við reynum alltaf að bæta okkur,“ segir hann.


Tengdar fréttir

Einhver kynferðisbrot tilkynnt eftir helgina en of snemmt að bera saman við fyrri ár

Ofbeldisbrot um verslunarmannahelgina virðast við fyrstu sýn álíka mörg og fyrir faraldur að sögn verkefnastjóra aðgerða gegn ofbeldi hjá ríkislögreglustjóra. Einhver kynferðisbrot hafi komið á borð lögreglu en hafa þurfi í huga að þau séu yfirleitt tilkynnt seinna. Þá sé sumarið ekki búið og stórir viðburðir fram undan.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×