Bílar

Nýr rafbíll frá MG

Kristinn Ásgeir Gylfason skrifar
Séð framan á MG4.
Séð framan á MG4.

Nýr rafbíll frá MG er væntanlegur til BL á haustmánuðum. Um er að ræða hlaðbak sem ber heitið MG4 sem er sérlega vel búinn fimm manna fjölskyldubíl í C millistærðarflokki. Forsala á MG4 hófst í vikunni og eru fyrstu bílarnir væntanlegir til BL við Sævarhöfða í lok október.

Meðfylgjandi er unnið upp úr fréttatilkynningu frá BL.

Nýr undirvagn hannaður frá grunni

MG4 er fyrsti bíllinn frá MG í þessum tiltekna stærðarflokki. Bíllinn er byggður á nýjum MSP undirvagni fyrir rafbíla (Modular Scalable Platform) sem MG hefur þróað fyrir flatt gólf og lægri þyngdarpunkt. Í undirvagninum er rafhlaða bílsins sem er aðeins 110 mm á hæð og gerir kleift að auka plássið verulega í farþegarýminu fyrir bæði farangur og farþega.

Aðstaða ökmanns í MG4.

64 kWh rafhlaða

MG4 verður boðinn í Luxury útfærslu með 64 kWh rafhlöðu sem dregur allt að 435 km. Bíllinn er 201 hestafl, hröðun úr kyrrstöðu í 100 km/klst er tæpar 8 sekúndur og hámarkshraði takmarkaður við 160 km/klst. Verð MG4 Luxury er frá 4.800.000 kr.

Hliðar- og aftursvipur MG4.

Góðir aksturseiginleikar

Vegna lágs þyngdarpunkts og 50:50 þyngdardreifingar má vænta þess að MG4 hafi góða aksturseiginleika. MG4 kemur í upphafi með 400v rafhlöðukerfi og afturhjóladrifi en áformað er að næstu kynslóðir verði einnig boðnar í öðrum útfærslum, m.a. með 800v rafhlöðukerfi fyrir hraðari hleðslu og vali um tvo rafmótora við hvora drifrás í aldrifinni útfærslu.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×