Erlent

Níu ára stúlka skotin til bana í Liver­pool

Atli Ísleifsson skrifar
Árásin átti sér stað í húsi við Kingsheath Avenue í hverfinu Knotty Ash, austarlega í Liverpool.
Árásin átti sér stað í húsi við Kingsheath Avenue í hverfinu Knotty Ash, austarlega í Liverpool. Getty

Níu ára stúlka var skotin til bana í íbúð í ensku borginni Liverpool í gær. Auk stúlkunnar urðu karl og kona í íbúðinni einnig fyrir skotum og voru þau flutt á sjúkrahús til aðhlynningar, en árásarmannsins er leitað.

Sky News segir að morðrannsókn sé hafin hjá lögreglunni í Bretlandi. Árásin var gerð í húsi við götuna Kingsheath Avenue í hverfinu Knotty Ash, austarlega í borginni.

Óþekktur árásarmaður á þar að hafa skotið úr byssu sinni, að því er fram kemur í tilkynningu frá lögreglu, þar sem biðlað er til fólks að koma myndefni úr öryggismyndavélum, sem kann að nýtast við rannsóknina, í hendur lögreglu.

Stúlkan var skotin í bringuna og var hún flutt á sjúkrahús þar sem hún lést af völdum sára sinna.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×