Innlent

BL frumsýnir nýjan sjö manna fjórhjóladrifinn lúxusrafjeppa

Kristinn Ásgeir Gylfason skrifar
Hongqi E-HS9.
Hongqi E-HS9.

Hongqi er nýtt vörumerki hjá BL við Sævarhöfða og verður af því tilefni haldin sérstök frumsýning í dag, laugardaginn 15. október milli kl. 12 og 16. Á sýningunni verður flaggskip framleiðandans, hinn aldrifni (AWD) og 100% rafdrifni lúxusjeppi, Hongqi E-HS9, kynntur og verður reynsluaksturbíll til taks á staðnum.

Meðfylgjandi er byggt á fréttatilkynningu frá BL.

Þægindi og tækni

Hongqi E-HS9 er stór 100% rafdrifinn, fjórhjóladrifinn jeppi frá Hongqi sem framleitt hefur bifreiðar allt frá árinu 1958. Staðalbúnaður í grunngerðinni er vítt opnanlegt glerþak, rafstýrður afturhleri og þykkari bílrúður en venja er til að auka hljóðvist í farþegarýminu. E-HS9 Exclusive gerðin er búinn meiri tækni en margir eiga að venjast, svo sem loftpúðafjöðrun, Nappaleðurákvæði og nuddi í sætum ökumanns og farþega. Við framsæti Exclusive eru auk þess fjórir skjáir sem samanstanda af stafrænu mælaborði og þremur upplýsinga- og afþreyingarskjám.

Aftursæti í Hongqi E-HS9.

Hlaðinn öryggisbúnaði

Á öryggissviði eru Hongqi E-HS9 búinn mikilli og þróaðri tækni, m.a. skynvæddum hraðastilli með nálægðarstillingum, AVAS hljóðviðvörunarkerfi, rafrænu stöðugleikakerfi, ákeyrsluviðvörun, umferðarskynjara að aftan, 360°myndavélakerfi, bílastæðaaðstoð, akreinaskynjara og -stýringu auk sjálfvirkrar neyðarhemlunar svo fátt eitt sé nefnt. Ítarlegri upplýsingar um vandaðan þæginda- og öryggisbúnað Hongqi E-HS9 má nálgast á vefsíðu merkisins hér á landi, Hongqi.is, bl.is og hjá söluráðgjöfum BL við Sævarhöfða.

Allt að 551 hestafl

BL býður Hongqi E-HS9 í sex og sjö sæta útgáfum sem boðnar eru í þremur búnaðarútfærslum; Comfort, Premium og Exclusive. Útgáfurnar Comfort og Premium eru með sæti fyrir sjö manns (2x3x2) og Exclusive fyrir sex (2x2x2). Comfort-útfærslan er búin 84 kWh rafhlöðu sem skilar 435 hestöflum og 396 km drægni á meðan Premium og Exclusive hafa 99 kWh raflöðu og 551 hestafla rafmótor og er drægni beggja útgáfa 465 km. Þótt þessi rúmgóði og stæðilegi lúxusjeppi sé um 2,6 tonn er snerpa allra gerða geysilega mikil enda bíllinn aldrifinn og með togkraft frá 600 til 750 Nm sem skila hröðun úr kyrrstöðu í 100 km/klst á innan við 5 sekúndum.

Viðtökur erlendis

Framleiðsla Hongqi hófst árið 1958 og afhenti framleiðandinn á síðasta ári yfir 3,5 milljónir ökutækja. Hongqi E-HS9, flaggskip merkisins, hefur fengið góðar viðtökur á mörkuðum Evrópu þar sem bíllinn er kominn í sölu, ekki síst Noregi, þar sem selst hafa um 1.300 eintök frá því að salan hófst fyrr á þessu ári. Auk Íslands eru um þessar mundir að taka til starfa umboð fyrir merkið í Svíþjóð og Hollandi.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×