Hljóðhimnar tilnefnt til Hönnunarverðlauna Íslands 2022 Sylvía Rut Sigfúsdóttir skrifar 26. október 2022 09:00 Verkefnið Hljóðhimnar hlýtur tilnefningu til Hönnunarverðlauna Íslands 2022. Hönnunarmiðstöð Íslands Hljóðhimnar eftir Þykjó er tilnefnt til Hönnunarverðlauna Íslands 2022. Verðlaunin fara fram í Grósku þann 17. nóvember.
Þessa viku munum við birta eina tilnefningu á dag til Hönnunarverðlauna Íslands 2022 í samstarfi með Hönnunarmiðstöð Íslands. Rökstuðningur dómnefndar: Hljóðhimnar er heildræn og fallega útfærð hönnunarlausn þar sem útkoman er virk upplifun sem opnar á skilningarvitin í gegnum leik. Um er að ræða nýtt upplifunarrými fyrir börn og fjölskyldur í Hörpu þar sem fræðsla og hughrif koma saman. Þverfaglega teymið ÞYKJÓ leiddi hönnunarferlið á rýminu í samstarfi við Hörpu, Gagarín, Vísindasmiðjuna, IRMA, Áróru lýsingarhönnun, Reykjavík Audio, Upptekið, Sinfóníuhljómsveit Íslands, Íslensku Óperuna, Maxímús Músíkús, Stórsveit Reykjavíkur og síðast en ekki síst Krakkaráð ÞYKJÓ, sem skipað er 100 börnum á aldrinum 5–7 ára. Sköpuð er forvitnileg, litrík og hlýleg umgjörð um undraheim hljóðs og tóna sem miðar að því að vekja forvitni og veita uppljómun. Skipulag rýmisins er innblásið af eyranu og líffærafræðilegu formunum sem eru að finna í hlustinni. Hljóðhimnar eru gott dæmi þess hve veigamiklu hlutverki góð hönnun getur gegnt í kennslu í gegnum leik, og þar með kveikt neista í hugum yngri kynslóða. Um verkefnið: Hljóðhimnar er upplifunarrými fyrir börn og fjölskyldur á jarðhæð Hörpu - staður til að uppgötva töfraheim hljóðs og tóna. Hljóðhimnar er afmælispakki frá Hörpu og íbúum hennar til allra barna, verkefni sem unnið var á 10 ára afmælisári hússins 2021 og opnaði vorið 2022. Í rýminu er hægt að uppgötva tóna tengda íbúum Hörpu, bæði stórum og smáum, allt frá tónelsku músinni Maxímús Músíkús til Sinfóníuhljómsveitar Íslands, frá Íslensku óperunni til Stórsveitar Reykjavíkur. Um hönnuðina: ÞYKJÓ er hópur hönnuða með fjölbreyttan bakgrunn sem samnýta ólíka sérþekkingu í teymisvinnu sinni. Innan vébanda ÞYKJÓ eru arkitekt, fatahönnuður og klæðskeri, leikmynda- og búningahönnuður. Hópurinn vinnur einnig náið með listafólki, vísindamönnum og fræðifólki á borð við uppeldisfræðinga, líffræðinga, listfræðinga og síðast en ekki síst - með börnum. Þykjó skipa Sigríður Sunna Reynisdóttir, búninga- og leikmyndahönnuður, Ninna Þórarinsdóttir, barnamenningarhönnuður, Erla Ólafsdóttir, arkitekt og Sigurbjörg Stefánsdóttir, klæðskeri og fatahönnuður. Klippa: Hljóðhimnar - Tilnefningar til Hönnunarverðlauna Íslands 2022 Dómnefnd Hönnunarverðlauna Íslands skipa þau Sigríður Sigurjónsdóttir, hönnuður og safnstjóri Hönnunarsafns Íslands sem er formaður dómnefndar, María Kristín Jónsdóttir, hönnuður, varaformaður, Ragna Fróðadóttir, hönnuður, Þorleifur Gunnar Gíslason, hönnuður, Arna Sigríður Mathiesen, arkitekt, Margrét Kristín Sigurðardóttir fyrir Samtök Iðnaðarins og Daniel Byström, hönnuður og stofnandi Design Nation. Um verðlaunin „Hönnunarverðlaun Íslands varpa ljósi á mikilvægi og gæðum íslenskrar hönnunar og arkitektúrs, enda er vægi hönnunar í menningu, samfélagi og viðskiptalífi alltaf að aukast. Hönnunarverðlaun Íslands beina sjónum að því besta sem gert er á sviði hönnunar og arkitektúrs á Íslandi um leið og einstaka hönnuðum eða hópum hönnuða er veitt mikilvæg viðurkenning. Verðlaunaafhendingin fer fram þann 17. nóvember næstkomandi ásamt samtali tengdum verðlaununum. Þar verða veitt Hönnunarverðlaun Íslands, Heiðursverðlaun Hönnunarverðlauna Íslands og viðurkenning fyrir bestu fjárfestingu í hönnun ársins 2022. Taktu daginn frá!“ Það er Miðstöð hönnunar og arkitektúrs sem stendur að verðlaununum, í samstarfi við Hönnunarsafn Íslands, Listaháskóla Íslands, Íslandsstofu og Samtök iðnaðarins.
Tíska og hönnun Hönnunarverðlaun Íslands Tengdar fréttir Áríðandi tilraunir á raunveruleikanum tilnefnt til Hönnunarverðlauna Íslands 2022 Verkefnið Áríðandi tilraunir á raunveruleikanum eftir Sól Hansdóttur er tilnefnt til Hönnunaverðlauna Íslands 2022. Verðlaunin fara fram í Grósku þann 17. nóvember. 25. október 2022 09:05 Snert á landslagi tilnefnt til Hönnunarverðlauna Íslands 2022 Verkefnið Snert á landslagi eftir Tinnu Gunnarsdóttur er tilnefnt til Hönnunarverðlauna Íslands 2022. Verðlaunin fara fram í Grósku þann 17. nóvember. 24. október 2022 09:00 Mest lesið Fann fíkniefnin strax Lífið Falleg tónlist GDRN hljómaði ekki nógu vel Gagnrýni Jón og Hafdís festu kaup á einbýli með bátaskýli Lífið Þátttaka Ísraela hafi skemmt mikið Lífið Statham og Baltasar sameina krafta sína í væntanlegri hasarmynd Bíó og sjónvarp Þessi lönd gáfu Íslandi stigin þrjú Lífið Þessi skipuðu íslensku dómnefndina í Eurovision Lífið Neyslusaga móður: „Það var rítalínið sem rústaði mér alveg“ Áskorun Ráðist á Steve Buscemi og hann fluttur á sjúkrahús Lífið Táraflóð í útgáfuteiti Bjarna Lífið Fleiri fréttir „Þegar manni líður vel í eigin skinni skín það í gegn“ „Stútfull og við það að springa en hefur aldrei klikkað“ 23 ára og með sína eigin förðunarlínu Laufey skein skært á Met Gala Best klæddu stjörnurnar á Met Gala „Elska hraðann, pressuna og stressið“ Fataherbergið seldi henni íbúðina strax Alltaf með naglaþjöl en gleymir stundum lyklunum Innsýn í fatahönnun framtíðarinnar Lófaklapp og litagleði á tískusýningu útskriftarnema Strangheiðarleg dreifbýlistútta og lopapeysan í uppáhaldi „Elska að hafa skipulagt kaos“ „Spyr mig oft hvort öll þessi vinna sé þess virði“ Listræn súkkulaðiupplifun og girnilegt smakk Menningarlífið iðar og HönnunarMars hefst á morgun Hefur hannað fyrir Miley Cyrus og Erykah Badu Íslensk skartgripahönnun á besta stað í New York Starfaði fyrir pólska herinn og sýnir nú skartgripi á Garðatorgi Kemur beint frá París með vistvæna tískustrauma „Frá naglalakki hjá ömmu í iðnaðarmann í skítugum fötum“ Myndavél frá afa algjör fjársjóður „Það mikilvægasta er að vera trúr sjálfum sér“ Munnskolið mikilvægt í förðunarstarfinu „Sjálfstraustið er besti fylgihluturinn“ Sjá meira
Áríðandi tilraunir á raunveruleikanum tilnefnt til Hönnunarverðlauna Íslands 2022 Verkefnið Áríðandi tilraunir á raunveruleikanum eftir Sól Hansdóttur er tilnefnt til Hönnunaverðlauna Íslands 2022. Verðlaunin fara fram í Grósku þann 17. nóvember. 25. október 2022 09:05
Snert á landslagi tilnefnt til Hönnunarverðlauna Íslands 2022 Verkefnið Snert á landslagi eftir Tinnu Gunnarsdóttur er tilnefnt til Hönnunarverðlauna Íslands 2022. Verðlaunin fara fram í Grósku þann 17. nóvember. 24. október 2022 09:00