Fótbolti

Skýjakljúfarnir tveir í Katar sem skipta stanslaust um fánaliti

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Það er óhætt að segja að efni tengt HM í fótbolta sé út um allt í Katar.
Það er óhætt að segja að efni tengt HM í fótbolta sé út um allt í Katar. Getty/Mike Hewitt

Heimsmeistaramótið í fótbolta hefst á sunnudaginn kemur þegar heimamenn í Katar taka á móti Ekvador í opnunarleik mótsins.

Daginn eftir fara síðan fram þrír leikir og svo verður spilað þar til úrslitin ráðast sex dögum fyri jól.

HM er ekki bara verkefni knattspyrnusambands Katar heldur allra þjóðarinnar og það má sjá merki um heimsmeistaramótið út um allt Katar en ekki síst í höfuðborginni.

Eitt það sem hefur vakið hvað mesta athygli eru tveir skýjakljúfar í miðbæ Dóha sem eru líklegir til að trufla einhverja ökumenn.

32 þjóðir keppa á þessu tuttugasta og öðru heimsmeistaramóti og umræddar byggingar sýna þessar keppnisþjóðir.

Skýjakljúfarnir í Katar skipta nefnilega stanslaust um fánaliti eins og sjá má á myndbandinu hér fyrir neðan.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×