Fótbolti

Nýliðarnir styrkja sig

Hjörvar Ólafsson skrifar
Brynjar Snær Pálsson er nýjasti leikmaður HK. 
Brynjar Snær Pálsson er nýjasti leikmaður HK.  Mynd/HK

Brynj­ar Snær Páls­son geng­inn til liðs við karlalið HK í fótbolta. Brynjar Snær sem er 21 á miðvallarleikmður kemur í Kórinn frá Skagamönnum en þessi uppaldi Borgnesingur hefur leikið með Skaganum frá árinu 2017.

Brynjar Snær hef­ur leikið 50 leiki með Skaga­mönn­um í efstu deild og skorað í þeim leikjum tvö mörk. Þá hefur hann hefur leikið átta leiki með yngri landsliðum Íslands.

Þetta er annar leikmaðurinn sem HK nælir í síðan liðið tryggði sér sæti í efstu deild karla í haust en áður hafði sóknarmaðurinn Atli Hrafn Andrason komið frá Eyjamönnum. 

Brynjar Snær gerir þriggja ára samning við HK. 

Brynjar Snær handsalar samning sinn við Ómar Inga Guðmundsson, þjálfara HK-liðsins. 



Fleiri fréttir

Sjá meira


×