Innlent

Fólk teppir línur Neyðar­línunnar með spurningum um færð

Árni Sæberg skrifar
Vegir eru víða lokaðir. Fólk er beðið um að fylgjast með lokunum á vefnum frekar en að hringja í 1777. Þá er fólki sagt að hringja alls ekki í Neyðarlínuna nema í neyð.
Vegir eru víða lokaðir. Fólk er beðið um að fylgjast með lokunum á vefnum frekar en að hringja í 1777. Þá er fólki sagt að hringja alls ekki í Neyðarlínuna nema í neyð. Vísir/Vilhelm

„Ekki hringja í neyðarlínuna nema í neyð,“ segir í tilkynningu á vef Vegagerðarinnar sem ítrekar að allar upplýsingar um lokanir vega megi sjá á vefnum umferdin.is.

Mikið álag hefur verið á upplýsingasíma Vegagerðarinnar 1777. Svo mikið að þegar fólk nær ekki í gegn bregður það á það ráð að hringa í Neyðarlínuna 112, segir í tilkynningunni.

Þar séu allar línur tepptar af fólki að spyrja um færð, veður og lokanir vega, sem sé afar slæmt. Vegagerðin biðlar til fólks að hringja alls ekki í Neyðarlínuna til að spyrja að þessum hlutum.

Þá segir að umferðarþjónusta Vegagerðarinnar nái ekki að sinna öllum þeim fjölmörgu símtölum sem berast henni og því sé fólk beðið um að fylgjast með á umferðarvef Vegagerðarinnar umferdin.is. Þar birtist upplýsingar um leið og teknar eru ákvarðanir um opnun og lokun vega.

„Aftur skal ítrekað: Ekki hringja í Neyðarlínuna til að fá upplýsingar um veður og færð,“ segir í lok tilkynningar.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×