Innlent

Vonast til að koma rafmagni á Grundarhverfi fyrir kvöldmat

Hallgerður Kolbrún E. Jónsdóttir skrifar
Um fjögur hundruð heimili eru án rafmagns á Akranesi.
Um fjögur hundruð heimili eru án rafmagns á Akranesi. Vísir/Egill

Rafmagn fór af nokkuð stóru svæði á Akranesi á þriðja tímanum í nótt og stendur viðgerð enn yfir. Bilunin reyndist mun víðtækari en upphaflega var gert ráð fyrir.

Tilkynning barst um rafmagnsleysið frá Veitum í nótt þar sem sagði að orsakavaldurinn væri háspennubilun og talið var að rafmagn yrði komið á aftur innan stundar. Nú í morgunsárið var tilkynnt að starfsmenn Veitna vinni hörðum höndum að koma rafmagni aftur á alla notendur sem allra fyrst. Nú sé ljóst að sú vinna muni standa fram eftir degi, öðrum degi jóla.

„Það er ekkert vitað enn hvað olli biluninni en við leggjum allt kapp á að finna bilunina sjálfa og gera við hana,“ segir Helgi Guðjónsson hjá Rafveitu Veitna. Bilunin hefur áhrif á svokallað Grundarhverfi, sem nær frá Leynisbraut að Dalsflöt og frá Garðagrund niður fyrir Sólmundarhöfða.

„Þetta eru svona um það bil 400 heimili sem þetta snýr að ásamt Höfða, dvalar- og hjúkrunarheimilinu en dvalarheimilið sjálft er með varaaflstöð þannig að þau eru sjálfbær sem stendur,“ segir Helgi. 

Bilunin ætti ekki að hafa áhrif á upphitun húsa í flestum tilfellum.

„Það er svolítið misjafnt sko, það fer svolítið eftir því hvernig fólk er með hitakerfin í húsinu sínu. Ég tel að þetta hafi óveruleg áhrif á hita.“

Hafið þið einhverja hugmynd um hvenær þetta ætti að koma í lag?

„Það er alltaf mjög erfitt með svona tilfelli að meta tímann en við vonumst til að þetta verði komið rafmagn á allflesta þarna fyrir kvöldmat.“


Tengdar fréttir

Raf­magns­laust á Akra­nesi vegna stórrar bilunar

Rafmagn fór af nokkuð stóru svæði á Akranesi á þriðja tímanum í nótt. Í uppfærðri tilkynningu frá Veitum segir að bilunin sé stærri en upphaflega var gert ráð fyrir og að viðgerðarvinna muni standa yfir fram eftir degi.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×