Neytendur

Margvíslegar verðhækkanir um áramót

Auður Ösp Guðmundsdóttir skrifar
Verri verðbólguhorfur hafa skilað sér í gjaldskrárhækkunum víða um land.
Verri verðbólguhorfur hafa skilað sér í gjaldskrárhækkunum víða um land. vísir/vilhelm

Landsmenn geta átt von á margvíslegum verðhækkunum um áramótin en misjafnt er hvað snertir hvern. Vísir fór á stúfana og skautaði yfir landslagið hvað varðar verðhækkanir á þjónustu á landinu. Eðli máls samkvæmt er listinn þó langt í frá tæmandi.

Hækkanir á nefskatti, áfengi og rafbílum

Ýmis gjöld á vegum hins opinbera, sem snerta alla landsmenn, munu hækka nú í byrjun árs.

Svokallaðir krónutöluskattar hækka um 7,7 prósent en hækkunin nær til áfengis-, tóbaks-, bensín-, olíu-, kolefnis-, bifreiða- og kílómetragjalds auk gjalds í Framkvæmdasjóð aldraðra, útvarpsgjalds og gjalda sem falla undir lög um aukatekjur ríkissjóðs.

Um áramótin verður dregið úr afslætti í tollfrjálsum verslunum þannig að áfengisgjald hækkar úr 10 prósent upp í 25 prósent og tóbaksgjald úr 40 prósent upp í 50 prósent. Þetta þýðir að hækkunin mun fyrst og fremst bitna á verslun í fríhöfninni í Leifsstöð.

Brennivínssopinn verður dýrari í fríhöfninni.Vísir/Vilhelm

Þá mun útvarpsgjald, eða svokallaður nefskattur hækka um 7,5 prósent og fer úr 18.800 krónum upp í 20.200 krónur.

Þá munu breytingar á verðskrá ON hafa það í för með sér að almennt söluverð á raforku hækkar um 6,3 prósent.

Bensín- og olíugjald hækkar um 7,7 prósent og mun bensínlítrinn því hækka um átta krónur. Þá mun bifreiðagjald fara úr 7.540 kr sem greitt er tvisvar á ári upp í í 15.080 krónur.

Gjaldtaka verður aukin á rafmagns og tvinnbílum og búið er að boða 5 prósent lágmarks vörugjald á ökutæki. Gera má ráð fyrir því að verð á nýjum bílum hækki um allt að 5 prósent vegna breytinganna. Þetta þýðir til að mynda að rafbíll sem sem kostar í dag um sex milljónir króna mun hækka um 6-700 þúsund krónur í verði, að með töldum virðisaukaskatti og vörugjöldum.

Herjólfur mun hækka verðskrá um 10 prósent á farþega og farartæki frá 1. janúar 2023. Þá mun verðið í Vaðlaheiðargöng hækka frá og með 2.janúar .Verðhækkunin er mismikil á milli verðflokka en sé umferð ársins 2022 lögð til grundvallar er vegin verðskráhækkun um 8 prósent í heild.

Herjólfur í HafnarfjarðarhöfnVísir/Vilhelm

Þá mun heildsöluverð mjólkur og mjólkurvara almennt hækka um 3,5 prósent en verðlagsnefnd búvara tók þá ákvörðun á dögunum að hækka lágmarksverðs mjólkur til bænda sem og heildsöluverðs mjólkur og mjólkurafurða.

Þá mun Pósturinn hækka verð á bréfum, fjölpósti og pakkasendingum innanlands. Verð á pakkasendingum innanlands hækkar um 5-10 prósent en verðbreytingarnar eru þó mismunandi eftir landsvæðum. Verð fyrir fjölpóst hækkar að meðaltali um 20 prósent.

Mismunur milli sveitarfélaga

Sveitarfélögin hækka flest gjaldskrár um áramótin en algengar gjaldskrárhækkanirnar eru þó mismunandi.

Hjá Reykjavíkurborg eru algengar hækkanir í kringum 5 prósent, í Kópavogi 7,7 prósent og í Hafnarfirði 9,5 prósent. Akureyrarbær hefur boðað 10 prósenta hækkanir á velferðarsviði, svo sem í félagslegri heimaþjónustu og heimsendum mat. Annað hækkar um 7 til 10 prósent. Á Ísafirði er almenn hámarkshækkun á gjaldskrám 8 prósent. 

Í Skagafirði hefur verið boðuð 6 prósenta hækkun leikskólagjalda og 7,7 prósenta hækkun fæðisgjalds, bæði í grunn- og leikskólum. Í Fjarðabyggð eru hækkanir tæp 5 prósent í flestum flokkum svo sem vatns- og hitaveitu, leikskóla og frístund. Í Garðabæ hækkar gjaldskrá um 7 prósent og útsvar helst óbreytt í 13,7 prósent.

Hækkanir á fasteignagjöldum

Fasteignaeigendur mega búa sig undir mikla hækkun á fasteignagjöldum um áramótin sökum hækkunar á fasteignamati.

Fasteignaskattur á íbúðarhúsnæði í Reykjavík hækkar um 21 prósent að meðaltali og á sérbýli um 25 prósent. Þannig hækkar meðal fasteignaskattur á íbúðarhúsnæði í Reykjavík úr 96 þúsund krónum upp í 116 þúsund krónur, samkvæmt tölum frá Húsnæðis- og mannvirkjastofnun.

Fasteignaeigendur mega búa sig undir mikla hækkun á fasteignagjöldum um áramótin.Vísir/vilhelm

Það sama er uppi á teningnum á Akureyri þar sem fasteignagjöld hækka í takt við hækkun fasteignamats. Í Garðabæ munu fasteignagjöld á íbúa koma til með að lækka í 0,166 prósent. 

Á Ísafirði verður álagningarprósentan hækkuð úr 0,56 prósent í 0,593 prósent. Í Múlaþingi verður álagningarprósentan hins vegar lækkuð. Á Akureyri hefur Velferðarráðið samþykkt að hækka gjaldskrá félagslegra íbúða um sex prósent svo hægt sé að fjölga íbúðum.

Dýrara í sund

Í Reykjavík mun árskort í sund fyrir fullorðið fólk hækka um tvö þúsund krónur og kostar á næsta ári 41 þúsund. Stakur miði í sund hækkar líka og mun kosta 1.210. Á Ísafirði hækkar árskort í sund um 10 prósent og er í samræmi við hækkun gjaldskrár í Bolungarvíkurkaupstað.

Hærra verð á skólamáltíðum

Þá verður dýrara fyrir börn að borða heitar máltíðir í grunnskólum Reykjavíkurborgar. Mánaðaráskrift hækkar um 549 krónur og mun kosta 11.744. Á Ísafirði hækkar gjaldskrá um 5-8 prósent og er þar horft til hækkunar verðlags. Stök máltíð og ávextir hækka um 5 prósent og mjólkuráskrift um 7-8 prósent.  Á Akureyri hækkar gjaldið um 7,5 prósent. Í Hafnarfirði hækkar gjaldið um 9,5 prósent og mun til dæmis áskriftarverð á stakri máltíð fara úr 487 kr. Í 533 kr.

Verð á skólamáltíðum hækkar víða.fréttablaðið/vilhelm

Leikskólagjöldin hækka víða

Í Reykjavík hækka leikskólagjöldin 4,9 prósent. Á Ísafirði hækka gjöldin um 8 prósent og á Reykjanesi 7 prósent. Á Akranesi hækkar þjónustugjaldskrá um 7 prósent en gjaldskrá leikskóla verður óbreytt og tekur ekki hækkun. Í Hafnarfirði hækkar gjaldið um 7,7 prósent.

Hefur þú ábendingu um verðhækkanir í þínu nánasta umhverfi? Sendu okkur línu á ritstjorn@visir.is.





Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×