Fótbolti

Sigur og tap hjá Rómarliðunum

Smári Jökull Jónsson skrifar
Stuðningsmenn Roma með áhugaverðan fána í stúkunni í dag til stuðnings þjálfaranum Jose Mourinho.
Stuðningsmenn Roma með áhugaverðan fána í stúkunni í dag til stuðnings þjálfaranum Jose Mourinho. Vísir/Getty

Roma jafnaði nágranna sína í Lazio að stigum þegar liðið lagði Bologna í Serie A deildinni á Ítalíu í dag. Lazio tapaði á sama tíma fyrir Lecce eftir að hafa haft forystuna í hálfleik.

Fyrir leikinn í kvöld var Lazio í fjórða sæti deildarinnar en Roma í sjöunda sætinu, þremur stigum á eftir, en fjögur efstu lið deildarinnar ná sæti í Meistaradeildinni að ári.

Roma tók á móti Bolgona á heimavelli sínum Stadio Olimpico og voru ekki lengi að taka forystuna þegar Lorenzo Pellegrini skoraði úr vítaspyrnu strax á sjöttu mínútu leiksins. 

Staðan í hálfleik var 1-0 en í síðari hálfleiknum þurfti Paulo Dybala meðal annars að fara af velli hjá Roma vegna meiðsla. Lærisveinar Jose Mourinho héldu þó út og unnu góðan 1-0 sigur.

Á sama tíma lék hitt Rómarliðið, Lazio, á útivelli gegn Lecce. Lazio komst yfir á 14. mínútu þegar Ciro Immobile skoraði en í síðari hálfleiknum svöruðu heimamenn með tveimur mörkum. Fyrst skoraði hinn brasilíski Gabriel Strefezza á 57.mínútu og Lorenzo Colombo skoraði sigurmarkið þegar um tuttugu mínútur voru eftir. Lokatölur 2-1 og Lecce þar með komið upp í tólfta sæti deildarinnar.

Fjórir leikir eru á dagskrá í Serie A í kvöld og þar á meðal stórleikur Inter og Napoli.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×