Körfubolti

Tryggvi Snær með tíu stig fyrir Zaragoza sem tapaði eftir framlengingu

Smári Jökull Jónsson skrifar
Tryggvi Snær í leik með Zaragoza.
Tryggvi Snær í leik með Zaragoza. Vísir/Getty

Tryggvi Snær Hlinason skoraði tíu stig og tók fimm fráköst í naumi tapi Zaragoza gegn Rio Breogan í spænska körfuboltanum í kvöld. Zaragoza er enn í baráttu við botn deildarinnar.

Það hefur ekki gengið sérlega vel hjá liði Zaragoza í vetur en liðið var fyrir leikinn í þriðja neðsta sæti deildarinnar með þrjá sigra í fjórtán leikjum, jafn marga og liðin tvö fyrir neðan það í töflunni.

Leikurinn í kvöld var spennandi. Staðan í hálfleik var jöfn, 43-43 og spennan hélt áfram í síðari hálfleiknum. Zaragoza var með fimm stiga forystu þegar tvær mínútur voru eftir en skoraði ekki stig undir lokin og liði Breogan tókst að jafna í 79-79 þegar níu sekúndur voru eftir og knýja fram framlengingu.

Gestirnir í Breogan komst síðan í þriggja stiga forystu snemma í framlengingunni sem Zaragoza tókst aldrei að brúa. Lokatölur 90-88, sárt tap fyrir Tryggva Snæ og félaga.

Tryggvi Snær lék í rúmar þrjátíu mínútur í kvöld. Hann skoraði tíu stig, tók fimm fráköst og gaf eina stoðsendingu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×